GÓP-fréttir FKE-vefurinn |
Velkomin í Félag kennara á eftirlaunum Mundu að senda inn netfangið þitt - líka ef þú breytir því! |
Nyt- samar upp- lýsingar Til baka |
Nokkrar upplýsingar um starfsemi FKE Félag kennara á eftirlaunum er - eins og nafnið segir: félag allra kennara og einnig annarra félagsmanna KÍ sem komnir eru á eftirlaun. Um leið verður makinn fullgildur félagsmaður og kjörgengur til allra starfa innan félagsins - með þó einni takmörkun: ef hann er ekki líka kennari getur hann ekki orðið fulltrúi félagsins á þingi KÍ - en þar er raunar ekki mikils í misst. Þátttakan kostar ekkert. Makinn er fullgildur félagi þótt kennarinn falli frá. Þessu fylgir þátttaka í því sem félagið boðar til og flest er undir kostnaðarverði. Til dæmis um það er kaffigjaldið á Fræðslu- og skemmtifundunum - og þegar farin er hin hefðbundna dagsferð í ágúst þá er gjaldið í raun um það bil hálfvirði. Félagið greiðir nokkurn veginn bílakostnaðinn en það sem þátttakendur greiða er um það bil fyrir kvöldverðinum sem þá er ætíð í hátíðarbúningi. Þátttaka í hópastarfsemi félagsins kostar ekkert - þar er átt við bókmenntaklúbbinn, tölvustarfið og kórstarfið en það fer allt fram í Reykjavík. Félagið fær dálítið rekstrarfé frá sjóði KÍ sem notað er í þessu skyni. Þú skalt ekki falla í stafi yfir því. Þar er um að ræða um það bil félagsgjald eins einstaklings í sjóði KÍ eftir starfsævina og þeir sem nú eru virkir í KÍ og dást að afli þess og eigum - tóku það allt í arf frá okkur - ef rétt er að tala um arf eftir fólk sem enn er ofar moldu. Ef þú varst á félagaskrá í aðildarfélagi KÍ þegar þú fórst á eftirlaun hefði kerfið auðvitað átt að færa þig sjálfvirkt af þeirri skrá á FKE-skrána. En - kerfið er ekki þannig og þess vegna þarft þú að senda inn ósk um skráningu í félagið. Skráðum félagsmönnum FKE bjóðast sérkjör við leigu orlofshúsa hjá Orlofssjóðnum. Sjá nánar hér. Umsjón með félagaskránni hefur: Félagsblað FKE nefnist FKE-fréttir. Það segir frá
starfsemi félagsins og er sent í tölvupósti til þín - þ.e. allra þeirra sem
hafa netfang. Þetta hraðar upplýsingum til félaganna og sparar félaginu
póstkostnað - en félagsmenn eru um 1500 talsins. Ef þú þekkir aðra félaga
sem hafa netfang en fá blaðið samt með póstberanum væri gott ef þú bentir
þeim á þetta sparnaðarráð okkar. Og - ef þú ert fjarri atburðum okkar, dvelur afskekkt eða í öðru landi og vilt létta okkur starfið og spara okkur að senda þér netpósta þá er svar okkar þetta:
|
Vísanir |
|
Efst á þessa síðu * Til baka >> FKE-vefurinn * Forsíða GÓP-frétta