Forsíða GÓPfrétta * * * Myndasíðan

Gunnur Elísa Stefánsdóttir
f. 31. mars 1980 - d. 10. maí 2014

(Þessi síða opnast með >> gopfrettir.net/Gunnur)

Músaðu hér
til að komast á myndasíðu Gunnar Elísu
Ef þú átt fleiri myndir eða kveðju sem þú vilt gjarnan bæta á síðuna
þá sendu póst og láttu vita.
>>

Sjá
Mbl
21.05.
2014

Gunnur Elísa Stefánsdóttir

Sjá Mbl 21. maí 2014

Gunnur Elísa fæddist á Ísafirði 31. mars 1980. Hún lést 10. maí 2014 á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi.

Foreldrar hennar eru Kristlaug Björg Sigurðardóttir, f. 2. jan. 1963, og Símon Elí Teitsson, f. 8. maí 1962. Þau slitu fljótt samvistir. Kristlaug giftist Stefáni Ingólfssyni, f. 7. okt. 1947, sem gekk Gunni í föðurstað. Hún ólst upp með þeim í Bolungarvík til 16 ára aldurs en þá fluttust þau á Djúpavog. Þaðan lá leið hennar til Reykjavíkur þar sem hún nam við Lýðskólann og seinna tók hún nám í snyrtifræðum.

Systkini hennar í móðurætt, börn Kristlaugar, eru Sigurður Anton, f. 18. mars 1981, Auðbjörg Elísa, f. 14. mars 1983, Kristín Halla, f. 27. des. 1985, og Stefán Ólafur, f. 31. ágúst 1989.
Systkini hennar í föðurætt, börn Símonar, eru Díana Margrét, f. 22. ágúst 1983, Teitur Már, f. 23. nóv. 1985, Ingvar Freyr, f. 17, júní 1990, og Salbjörg Rós, f. 25. maí 1994.

Gunnur giftist Davíð Karli Sigursveinssyni, f. 7. jan. 1978. Börn þeirra eru Alexander Bjarmi, f. 23. janúar 2000, Daníel Snær, f. 20. apríl 2001, og Embla Júlía Mjöll, f. 16. mars 2009.

Gunnur hreifst af starfi víkinga og þegar hægði á í erlinum við rekstur heimilisins lagði hún sitt lið meðal góðra vina í flokki Einherja í Reykjavík.

Þakkir
GÓP
og
RFr

Útför Gunnar Elísu fór fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21. maí 2014 í fagurbjörtu veðri. Kirkjan var full af vinum og vandamönnum - sem margir einnig komu með veisluföngin - sem alls voru svo rífleg að nóg var eftir þegar upp var litið eftir heimsókn þeirra 240 gesta sem gátu gefið sér kaffistund. 

Kæru ættingjar og vinir -
Innilegar þakkir fyrir hlýhug ykkar og samhjálp við fráfall Gunnar Elísu. Hjartans þakkir frá okkur og Davíð og börnunum til allra ættingja þeirra og vina. Kærar þakkir til félaga Gunnar Elísu í víkingasveit Einherja sem stóðu heiðursvörð við athöfnina.


Ágúst 2003
>>

Kveðja
frá
tengda-
foreldrum

Sjá
Mbl
21.05.
2014

Tengdadóttir okkar, Gunnur Elísa, er látin - nýlega orðin 34 ára.

Gunnur var öflugur liðsmaður og gekk að hverju sem var. Á síðustu árum starfaði hún með víkingaklúbbi og síðla í febrúar kom hún heim úr för á víkingahátíð í York á Englandi í boði víkingaklúbbs þar í borg. Hún var nokkurn veginn eins og hún átti að sér að vera í fimm ára afmælishófi Emblu þann 17. mars. Um nóttina var hún flutt á bráðamóttökuna með mikil krampaflog. Fljótlega kom í ljós að hún hafði illvígan vágest í heilanum, Gliomatoses Cerebris, sem engin lækning þekkist við. Það tók orku þessarar kraftmiklu konu sjö vikur að fjara svo út að loks varð ekki lengra haldið. Hún naut nær-veru fjölskyldu og vina og alveg sérstaklega móður sinnar, systur og ömmu allt til hinstu stundar og frábærrar aðstoðar og hlýhugs hjúkrunarfólks á B2 í Borgar-spítalanum og á Líknardeild Landspítalans.

Gunnur kaus að fá vísur í gestabókina sína:

Við heilsum þér við hjúkrabeðinn þinn
sem hér ert umlukt mengi góðra vina
við horfum til og heiðrum veginn þinn
með hjartans þökkum fyrir samfylgdina.

*
Í hugann kemur handavinna Gunnar sem fylgir tengdapabbanum á ferðalögum. Það er sérstaklega hannað úrvals teppi. Eftir eina kaldviðrisnótt í Nýjadal varð til þessi morgunvísa:

Rjúki fold við reginstig
og rofni himins brunnar
þá er ljúft að leggj'á sig
leynivopnið Gunnar.

*
Innilegt samúðarstreymi okkar til Davíðs, sonar okkar, og barnanna, Alexanders Bjarma, Daníels Snæs og Emblu Júlíu Mjallar, til allra ættingja þeirra og Gunnar fjölmörgu vina og kærar þakkir til þess óþreytandi starfsfólks Landspítalans sem annaðist hana.

*

Fæðing, lífið, ævintýrið - uns
opnum brám er loksins aftur strokið
markar ramma alls vors ævibruns
- eilífð drottningar er þar með lokið.

Ragna Freyja Karlsdóttir og 
Gísli Ólafur Pétursson.
Sjá Mbl 21. maí 2014 


2009
Með Emblu í ungbarnasundi

24. júní 2011
Með Emblu og Alexander á Þórsmörk -
sjá fleiri myndir hér

13. ágúst 2013
Tíu ára hjónabandsafmælið á Snælandi

1996
Systkinin Stefán, Sigurður, Halla, Auðbjörg og Gunnur.
*   *   *

Efst á þessa síðu * Forsíða