GÓP-fréttir * *

Jón Ármann Jakobsson
Fæddur 5. janúar 1935 - d. 26. júní 2008.


Júní 2000 - ættarmót í Reykjahlíð við Mývatn

Upp-
lýsingar
úr
Morgun-
blaðinu
á
útfarardegi
7. júlí 2008

Jón Ármann Jakobsson Pétursson fæddist í Danmörku 26. janúar1935. Hann andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 26. júní 2008. Hann var sonur hjónanna Margétar Einarsdóttur hjúkrunarkonu og Péturs H. J. Jakobssonar prófessors og yfirlæknis í Reykjavík. Systir Jóns Ármanns var Hrefna Pétursdóttir hjúkrunarkona, f. 1. maí 1938, d. 28. mars 1994.

Eiginkona Jóns Ármanns er Hafdís Einarsdóttir, fyrrverandi aðalgjaldkeri hjá embætti Lögreglustjórans í Reykjavík. Þau giftust 19. nóvember 1955. Börn þeirra eru:

Pétur Hálfdan skipulagsarkitekt, f. 15. mars 1956, maki Oddný Þóra Óladóttir landfræðingur, f. 26. janúar 1963.
Börn þeirra eru

Jakob Filippus, f. 20. október 1985 og
Hildur Helga f. 16. júní 1991.

Margrét snyrtifræðingur, f. 5. apríl 1960, maki Arnór H. Arnórsson rekstrarhagfræðingur, f. 28. júlí 1954.
Börn þeirra eru:

Anna Monika, f. 9. desember 1989 og
Arnór Már, f. 10. nóvember 1993.

Einar Þór verslunarmaður í Noregi, f. 26. mars 1962, maki Gina Jónsson, f. 19. júní 1974.
Dætur þeirra eru:

Hafdís, f. 14, júní 2003 og
Margrét, f. 17. september 2004.

Eftir hefðbundna skólagöngu lauk Jón loftskeytaprófi árið 1954. Hann lauk tæknifræðiprófi frá E.M.I. College í London árið 1959. Hann starfaði um tíma sem tæknifræðingur hjá DISA Elektronik í Kaupmannahöfn. Árið 1961 sneri hann aftur heim og starfaði hjá Pósti og síma eftir það. Frá árinu 1976 var hann skólastjóri Póst- og símamálaskólans og hin síðari ár safnvörður Fjarskiptasafns Símans.

Útför Jóns Ármanns var gerð frá Háteigskirkju mánudaginn 7. júlí 2008 kl. 15.

Kveðja

Hugurinn hverfist til samverustunda og spjalls
á frændastefnum og óvæntum mótum
þar sem asi augnablikanna gaf þó andartak
til að hlera um lífið og líkamann.

Hjartans samúðarkveðjur okkar frændfólksins til ykkar,
Hafdís, Pétur Hálfdan, Margrét og Einar
og til tengdabarnanna og barnabarnanna.  

Ævisól fer undir við
- enda lífsins fundir -
þakkar föðurfrændalið
fyrir gengnar stundir.

Gísli Ólafur Pétursson


6. apríl 2008 í Salnum í Kópavogi - við söngdagskrá Margrétar Hrafnsdóttur

Hafdís Einarsdóttir, Jón Ármann Jakobsson og Guðrún Gísladóttir.

2000

júní


Við Mývatn í júní 2000.

Margrét Jónsdóttir og Arnór Heiðar Arnórsson
og börn þeirra Anna Mónika og Arnór Már,
Hildur Helga Pétursdóttir, Hafdís Einarsdóttir og Jón Ármann Jakobsson.


1956 - Jón Ármann Jakobsson og Gísli Ólafur Jakobsson
á gangi í Kaupmannahöfn.

1950 - Þrír frændur í Gaggó Aust.

Jakob Jakobsson 13 ára, Gísli Ólafur Jakobsson 16 ára og Jón Ármann Jakobsson 15 ára
- í einkennispeysu Gagnfræðaskóla Austurbæjar.

GÓP-fréttir forsíða * Kveðju og minningarsíða