GÓP-fréttir
forsíða
|
Njáluslóðar-söngur
Í stórum hópi á Njáluslóð eru hugir manna margvíslega
tendraðir.
Sumir njóta íslenskrar sumarferðar á fagrar slóðir og nema
sögubrotin eins og ævintýri. Aðrir kannast við söguþráðinn,
virða fyrir sér sviðið og rifja upp atburðina með
leiðsögumanninum. Enn öðrum stendur sagan svo fyrir hugskotssjónum
að atburðir hennar eru sem innan seilingar og þeir geta hvar sem er
fyllt betur í hverja mynd.
Í Njáluför erum við sem lifandi nótur á hinu íslenska
hljómborði.
Þar á leikur hinn mikli máttur sem samofinn er úr ilmi andartaksins,
bliki náttúrunnar, gleði samferðarhópsins og hughrifum sögunnar.
Þá geta menn bergmálað óm hjarta síns með því að syngja saman
eftirfarandi texta við fallegt lag eftir Þjóðverjann Ralph Siegel.
Lagið sigraði í söngvakeppni Eurovision árið 1982 og heitir: Ein
bisschen Frieden.
|
> |
Hér eru karlar og konur í för kát öll í bragði með spaugið á vör Nú verður gleði og nú verður fjör! Nú flýgur stundin ör!
|
> |
Nú er ég hérna á Njálunnar slóð. Nýt hverrar stundar því sagan er góð. Sviðið er komið og kveikir mér glóð, - kallar fram sögn og ljóð.
|
> |
Sem ljómi sólin á silfurvogi oss sindrar Njálunnar skæri logi: - í Rangárþingi er bjartur bogi þó belji fljótið við iðusog.
|
> |
Og hugur flýgur á fornu skeiði og finnur sögu hjá gömlu leiði. - Já, út um byggðir og inn við heiði er bæði ásta- og vígaleið.
|
> |
Íslands ómur um mig fer ymur milt í brjósti mér - kynslóð mín er komin hér: kynngimögnuð stundin er.
|
> |
Ómurinn sogaði úð mín' og önd - andartak hvarf ég á fortíðarströnd: Formæður leit ég með fumlausa hönd við funans - og tregans lönd.
|
> |
Höfundur Njálu! Nú þökkum við
þér! - þjóðkæra skáldið sem horfið er mér - heilluðum augum nú hver og einn sér! Heiðraði sögugrér!
|
> |
Og nú er komandi kveðjustundin: - hún kallar til okkar, sögu-grundin. Við kveðjum hali, við kveðjum hrundir og köllum: Þökk fyrir þessa stund!
|
> |
Við komum aftur til okkar tíma, með eigið sjónvarp og bíl og síma og förum aftur og enn að kíma og erum syngjandi tölvu-rím.
|
> |
Bergmálar í brjósti mér - bærist jafnt í mér og þér, áður fyrr - og einnig hér Íslendingar erum vér!
|