Forsíða
MK-miðstöðin


Sjá neðar:
Hátíðin 13.3.'92

Jóhanna Friðriksdóttir
sem kennt hefur nemendum MK frá árinu 1972!

Í heiðurs-stúku MK-kennara - 2. júní 1995:

Texti: GÓP

Óþekkt lag (!?)

Við viljum flytja þér ástaróð
af endurminninga svæði
því ásta-ræða er ekki góð
- en allt má segja í kvæði:

>
Á meðan fram líða ár og öld
man eg til ráða og viðviks
og aldrei koma mín endurgjöld
til elsku Jóhönnu Friðriks.

>
Af hugarmyndum við höfum nóg
sem hæfir vel okkar aldri
og Grænutungunnar hæ og hó
þar hjá þeim, Jóhönn' og Baldri.

>
Já, sentimentið er okkur í,
á ást er grynnst - eða grunnast -
og þó þú hvílist við heitum því
að halda áfram að unnast!

13.03.1992 MK-kennarar
hjá Jóhönnu og Baldri í Grænutungu 5
Texti: GÓP

Lag:
Böðvar Guðm.
Lofsöngur

HúsRÁÐendur ljúfir í lundinum græna
sem lipurt oss heilsið með brosinu væna,
- nú lyftum við glösum svo glóir við drykkur
og gleðina tjáum með: 'Skál! Fyrir ykkur!!'
Hæ! Hó! Þessi var þykkur!
>
Og hugurinn rennur til horfinna stunda
með hlátri og söng hér í grænustum lunda -
- já, indælt er gestrisni ykkar að þýðast!
og af þessu segjum við líka sem tíðast:
Skál! Skál! Með þökk fyrir síðast!
>
Já, samkomugestir, með glösin! - og fæðu!
vér getum að sjálfsögðu verið án ræðu!
Já! Fáðu þér bita! - Já! Fáðu þér glundur!
Já, fáðu þér allt sem er yndi og undur!
Þetta er sko: hátíðafundur!
>
En senn kemur þar að allt þrýtur mig orðið
og þá er að raða sér upp - hér við borðið:
að búta og sneiða sem best þykir siður
- svo bregða skal hnífnum að spænist upp viður!
Hæ! Hó! Nú skerum við niður!
>
Og úr því við fórum að fjalla um þetta
þá finnst okkur ekki úr söðli að detta
að segja hve börnin við lítið á leggjum
og látum fá tíu á borðum og veggjum - :
Bara ef þau: hitta með eggjum!
>
Ja - nú er ég aldeilis þeystur á þönur
og þetta mitt kvæði allt hlaupið í gönur
-já - auðvitað hefi ég staðið í ströngu
þó stöðva mig hefði ég átt - fyrir löngu!
En ljóð mitt er loks - orðið að öngu!

Efst á þessa síðu * Forsíða * MK-miðstöðin