Forsíða
|
Örn Sigurbergsson
Fimmtugur 13.desember 2000 |
Texti: GÓP
Írskt þjóðlag: |
Hún upp er nú runnin sú ánægjustund að erum við komin á afmælisfund Til hamingju! Örn okkar! Hér erum vér á hátíðarstundu að gleðjast með þér!
|
> | Hann Örn - sem að erindin afgreiðir strax og ætlar í sumar að fara í lax og skilur til fullnustu skugganna spil - til skemmtunar boðar um sólarlagsbil
|
> | Við syngjum þér kveðju af kærustu gerð - svo kátum í iðu og verkefnamergð - hún sest þér á öxl og í sinni þér blæs að sífellt er veröldin ferlega næs!
|
> | Við vitum að dagur hver nokkru fram nær sem nauðsynlegt reyndist að fresta í gær og tilveran elskuleg þylur svo þýtt: að það má hvern morguninn byrj´upp á nýtt!
|
40 | Fertugur 13.desember 1990 |
Texti: GÓP
Lag: |
Þá er nú loks komið að honum Erni þó ekkert af okkur samt enn viti hvernig! því árin sem hey eitt á herðum sér ber`ann og hrífandi léttur í stórvirkin fer`ann! Hæ! hó! fertugur er`ann! |
> | Hvar sem hann fer er`ann lipur og laginn og ljúft gengur verðandin honum í haginn! og styttr`er í kímni en krakkana grunar og kennarahópinn hann bætir til muna! Hæ! hó! Það skaltu muna! |
> | Og hópurinn ólgar af alúð og hlýju og óskar til hamingju: Örn! fjörutíu! Með upplyftum glösum við óskunum klingjum og afmæliskveðjuna fyrir þig syngjum! Hæ! hó! Nóttina yngjum! |
> | Takk fyrir heimboð og góðvina gleði sem gaf okkur upplit frá daglegu streði! Og - húsfrúin Kristín! til hamingju með`ann! því hressari aldregi hefi ég séð`ann! Hæ! hó! Glaðan ég kveð`ann! |