Forsíða
MK-miðstöðin


MK-Gerpla

20. des. 1996 Texti: GÓP við sænskt lag.
Sjá texta Sig. Þór.:

Séleg pía er Sigga Geira
og sex-appíl hefur flestum meira,
hlýtt er og notalegt hennar ból
hverjum sem býður hún næturskjól.

Það vita: Kalli Jóns og Gústi læknisins
og Nonni Sæmundar og Halli rakarans
og Fúsi Sigurleifs og Pall' á Goðanum
og Denni í Efstabæ - og einnig ég.

Hetjusaga Hetjusaga sem lýsir för um hættuslóðir á vit myrkra afla til að líta helga dóma og neyta þjóðlegs réttar.
Ef textinn skilst ekki í fyrsta eða annað sinn - þá verið viss um að hann er margræður og djúpur.
Alla tvíræðni skal skilja viðkomandi kappa til aukins hróðurs.
Þetta er söngþraut þar sem prófað er hraðlæsi og skýrmæli en leyfilegt er að lækka meðalhraða.
Inngangur
og
aðvörun:

Þetta
er ekki ætlað
ungum börnum
Liðinn Þorri og liðin Skerpla
og loks í maí gerðist MK-Gerpla
- og hér er páraður pistillinn -
þú porra verður upp huga þinn.
Ég syng um ofurmenn og ýmsa súpermenn
og einnig yfirmenn og marga undirmenn
og einnig aðra snjalla, fima, frækna menn
og frúr og herramenn - og einnig mig.
Fyrir
þann gríðarlega
Hvalfjörð
Þó að fátt verð'úr ljóði lesið
var leiðin fyrst upp á Kjalarnesið
- ég aldrei gleymi að enginn söng:
því undir Hvalfjörð ei finnast göng.
Þar var'ún Anna Hjartar sem er stælt sem stál
og stúdentunum kennir hörku vélamál
og Ásdís Vatnsdal - ákveðin og enskuþjál.
Já, úrvals félagar - á hættuslóð.

Varð að bralla og brögð að taka
og brautir umhverfis allar aka
þótt mörg sé beygjan í bleytu hál
og berist leikur í sjávarmál.
Þar var'ún Ásta Kristrún - okkar öðlingur
og orkumagnari og sálarvíkingur
og Bára Hákonar sá Axel-snillingur.
Þær auka eldmóðinn - á hættuslóð.

Meðan ógnirnar yfir stóðu
þar inní bílnum menn elginn vóðu
um land og sögu - við lyftumst öll -
nú liðu áhyggjur út um fjöll
Þar var Elísabet sem öruggleg situr
með úrvals-vopnið sem er þýskan al-bitur
og Garðar Björgvins - bæði fær og fjölvitur.
Já, ferðagarparnir - á hættuslóð.

Í
vald Egils
og
Borgarnesgædans
Ókum síðan til Egils Skalla
og ógurlegri þeir gerðust varla
já, - nema draugar og dauður nár
við dularmögnun í þúsund ár.
Þar var'ann Góp og líka Guðjón Sigurjóns
sem gætir skólahúss - að eigi sæti tjóns,
og Guðlaug Ragnars sem að grisjar beinin ljóns.
Já, garpar saman þar - á hættuslóð.

Borgarnes verndar byggðar-gædi
sem byrlar sögu með galdralæti:
á skötu rær þaðan karl á kugg.
- Í kappaliðið nú setur ugg.
Þar var'ann Guðmundur sem gaf oss hugarstyrk
og gerði stærðfræði og eðlisfræði virk
og Helgi Kristjáns sem að öflin muldi myrk
þar mátti sagan sín - á hættuslóð.

Garpskapur
við
Íslands-öl
Skýjarofið er rjóður faldur -
nú rætast forspár um svartagaldur
og er við rennum á Rauðamel
er rokinn bylur með hvítaél.
Þar var'ún Hildur Einars, bjarta bókamær,
sem boðskap Saltarans við öllum ógnum hlær,
og Hildur Jónsdóttir sem býr til brynjur þær
sem bila aldregi - á hættuslóð.

Vaskur flokkur við þessum fregnum
nú veður hugdjarfur beint í gegnum
- og kannski brugðið og kannski föl
en kneifa hugprúðar Íslands-öl.
Þar var'ún Inga Karls með trausta tjáningu
sem tók á brott frá okkur alla þjáningu
og Ingibjörg Haralds með eðlis-áningu
sem alla örvaði - á hættuslóð.

Hetjur
á heljarslóð
Eins og gerist í öðrum sögum
þá elnar fyrnskan í þessum brögum
og er við komum í Kerluskarð
var kóf og mökkur við draugabarð.
Þar var'ann Ingólfur með afl og áræði
sem öllum andstæðingum bakar vandræði
og Jóhann Ísak sem með eld- og ísfræði
er alltaf vopnaður - á hættuslóð.

Út nú kempurnar knáar þustu
og kappi sínu við gjörning lustu
og eftir glæsileg töfratrikk
þar tóku herfang í máttardrykk.
Þar var'ann Kristján Kristjáns með sinn góða gand
svo gjörsamlega til með dúndur efnabland
og þar var Magnea með snarpan, blíðan brand,
sem bítur endalaust - á hættuslóð.

Sigurför
að sjókindum
Nú var haldið af heiði ofan
og hvergi sást lengur svarta vofan
sem verið hafði svo voða ólm
- við vorum komin í Stykkishólm.
Þar var'ún Margrét Friðriks með sitt lipra lag
sem leggur ákveðin í sérhvern nýjan slag
og þar var María sem magnar talnafag.
Það munaði um þær - á hættuslóð.

Kom að höfninni horskur flokkur
- nú hvolfist gjörningur yfir okkur -
með liði skiptu í lögum tveim
við leitum fyrir um sjávarheim.
Þar var'ann Neil með sína ofurorðagnótt
sem alla andstæðinga mæddi afar fljótt
og Ólöf Þorbergs sem að grípur gítar skjótt
svo gliðna fjendurnir - á hættuslóð.

Valhöll
Þegar kvöldar er kraftur ólmur
- nú kynnt er hótelið: Stykkishólmur!
Þá er á kempurnar komið stuð
að kvöldi dags eftir mikið puð.
Þar var'ún Sigríður sem æ er okkar ás
og öllu heldur þétt í hinni föstu rás
og Sigrún Magnúsdóttir - sem er sjaldan hás
og sendir ofurtón - á hættuslóð.
Suðurförin
Senn er runninn upp sunnudagur
með sól á himni - svo tær og fagur,
og nú er ekið þar út með dröfn
og alveg heimundir Bjarnarhöfn.
Þar var'ún Soffía með fræga fjörið sitt
sem félögunum hefur margan tímann stytt
og Þórdís Magnúsar sem margan hefur hitt
með heitri dönskuör - á hættuslóð.

Undir túnhjalla kúrir kirkja
þar kappar streyma nú sig að styrkja
því það þarf orku og það þarf grín
að þiggja hákarl og brennivín.
Þar var'ún Þórhildur sem bæði'er sterk og stillt
og stýrir rótt og milt þótt alsé orðið villt
og Örn sem Borgarnesið ætíð hefur hyllt.
Já, hetjur faglegar - á hættuslóð.

Loksins kvödd var sú mikla Mekka
og mátti sjá þessa prúðu rekka
með björtum vífum við brúnalog
á beinu fari í Kópavog.
Þar voru ofurmenn og ýmsir súpermenn
og einnig yfirmenn og margir undirmenn
og margir aðrir snjallir, fimir, fræknir menn
og frúr og herramenn - og einnig ég.

Morale Ef

Eftir Gerplu er aukin eining
og aukin gleði og aukin meining
og allir bíða með bros á vör
nú blika vonir um nýja för.
Þá fara símamenn og allir tæknimenn
og allir yfirmenn og allir undirmenn
og allir menn sem ég hef ekki talið enn
og allir merkismenn - og einnig ég.

Þátttakenda-
listinn:
Anna Hjartardóttir, vélritun
Ásdís Vatnsdal, enska
Ásta Kristrún Ólafsdóttir, sálarfræði
Bára Hákonardóttir, fulltrúi
Elísabet Þórðardóttir, þýska
Garðar Björgvinsson, tölvur
Gísli Ólafur Pétursson, tölvur
Guðjón Sigurjónsson, húsvörður
Guðlaug Ragnarsdóttir, kjötiðn
Guðmundur Helgi Helgason, stærðfræði, eðlisfr
Helgi Kristjánsson, saga
Hildur Einarsdóttir, bókavörður
Hildur Jónsdóttir, handmenntir
Inga D. Karlsdóttir, íslenska og tjáning
Ingibjörg Haraldsdóttir, eðlisfræði
Ingólfur Sigurðsson, bakari
Jóhann Ísak Pétursson, jarðfræði, stærðfræði
Kristján Kristjánsson, efnafræði
Magnea Ingólfsdóttir, sérkennari
Margrét Friðriksdóttir, skólameistari
María Louisa Einarsdóttir, efnafræði og stærðfræði
Neil McMahon, enska
Ólöf Þorbergsdóttir, matselja
Sigríður Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri
Sigrún Kristín Magnúsdóttir, forstöðumaður verknáms
Soffía Waag, ferðagreinar
Þórdís Magnúsdóttir, danska
Þórhildur Oddsdóttir, danska og landafræði
Örn Sigurbergsson, stærðfræði og eðlisfræði

Efst á þessa síðu * Forsíða * MK-miðstöðin