Forsíða
MK-miðstöðin


Njáluslóðar-söngur

Í stórum hópi á Njáluslóð eru hugir manna margvíslega tendraðir.
Sumir njóta íslenskrar sumarferðar á fagrar slóðir og nema sögubrotin eins og ævintýri. Aðrir kannast við söguþráðinn, virða fyrir sér sviðið og rifja upp atburðina með leiðsögumanninum. Enn öðrum stendur sagan svo fyrir hugskotssjónum að atburðir hennar eru sem innan seilingar og þeir geta hvar sem er fyllt betur í hverja mynd.

Í Njáluför erum við sem lifandi nótur á hinu íslenska hljómborði.
Þar á leikur hinn mikli máttur sem samofinn er úr ilmi andartaksins, bliki náttúrunnar, gleði samferðarhópsins og hughrifum sögunnar. Þá geta menn bergmálað óm hjarta síns með því að syngja saman eftirfarandi texta við fallegt lag sem sigraði í söngvakeppni Eurovision fyrir liðlega áratug og heitir:
Ein bisschen Frieden.

>
Hér eru karlar og konur í för
kát öll í bragði með spaugið á vör
Nú verður gleði og nú verður fjör!
Nú flýgur stundin ör!
>
Nú er ég hérna á Njálunnar slóð.
Nýt hverrar stundar því sagan er góð.
Sviðið er komið og kveikir mér glóð,
- kallar fram sögn og ljóð.
>
Sem ljómi sólin á silfurvogi
oss sindrar Njálunnar skæri logi:
- í Rangárþingi er bjartur bogi
þó belji fljótið við iðusog.
>
Og hugur flýgur á fornu skeiði
og finnur sögu hjá gömlu leiði.
- Já, út um byggðir og inn við heiði
er bæði ásta- og vígaleið.
>
Íslands ómur um mig fer
ymur milt í brjósti mér -
kynslóð mín er komin hér:
kynngimögnuð stundin er.
>
Ómurinn sogaði úð mín' og önd
- andartak hvarf ég á fortíðarströnd:
Formæður leit ég með fumlausa hönd
við funans - og tregans lönd.
>
Höfundur Njálu! Nú þökkum við þér!
- þjóðkæra skáldið sem horfið er mér -
heilluðum augum nú hver og einn sér!
Heiðraði sögugrér!
>
Og nú er komandi kveðjustundin:
- hún kallar til okkar, sögu-grundin.
Við kveðjum hali, við kveðjum hrundir
og köllum: Þökk fyrir þessa stund!
>
Við komum aftur til okkar tíma,
með eigið sjónvarp og bíl og síma
og förum aftur og enn að kíma
og erum syngjandi tölvu-rím.
>
Bergmálar í brjósti mér -
bærist jafnt í mér og þér,
áður fyrr - og einnig hér
Íslendingar erum vér!

Efst á þessa síðu * Forsíða * MK-miðstöðin