Forsíða |
1.5-Dæmin á íslenskuDæmasafn á bls. 139: |
1. - 4. dæmi: |
Notaðu reglustiku til að draga snertil til grafsins í punktinum P1 og einnig í punktinum P2 og reiknaðu út hallatölur þessara snertla. Athugaðu að það er alveg eðlilegt að þú fáir ekki út alveg það sama og svörin segja því örðugt er að draga einmitt rétta snertilinn! |
5.-8. dæmi: |
Reiknaðu jöfnu snertils til ferilsins í tiltekna punktinum. Rissaðu upp grafið ásamt snertlinum. |
9.-12. dæmi: |
Reiknaðu jöfnu snertilsins í tiltekna punktinum. |
13. dæmi: | Reiknaðu halla ferilsins í tiltekna x-gildinu. |
14. dæmi: | Reiknaðu halla ferils fallsins y = (x - 1)/(x + 1) þegar x = 0. |
15. dæmi: | Reiknaðu hvar fallið hefur láréttan snertil. |
16. dæmi: | Reiknaðu hvar fallið f(x) = x3- 3x hefur láréttan snertil. |
17. dæmi: | Fallið er y = 1/(x-1) Reiknaðu jöfnur allra snertla sem hafa hallatöluna -1. |
18. dæmi |
Lausn: Á bls. 148 í bókinni skaltu skoða example 1 þar sem þessi útleiðsla er framkvæmd. Næst er að reikna það gildi á x sem gerir f'(x) = 1/4. Til þess þarf að leysa þá jöfnu - sem lítur svona út: Þú skalt eyða brotunum með því að margfalda í gegn með samnefnaranum - og stytta með tveimur og að lokum hefurðu: Snertipunkturinn er því P(4, 2) og hallatalan er 1/4 og jafna snertilsins er y - 2 = 1/4 * (x - 4) sem lagast yfir í: y = x/4 + 1 |
19. dæmi: | Hlut er varpað úr 100 metra háum turni. Hæð hlutarins yfir jörðu er 100 - 4,9 t2 metrar eftir t sekúndur. Reiknaðu hraða hlutarins eftir tvær sekúndur. |
20. dæmi: | t sekúndum eftir að eldflaug er skotið á loft er hún komin í 3 t2 feta hæð. Reiknaðu hversu hratt hún hækkar sig eftir 10 sekúndur. |
21. dæmi: | Reiknaðu hversu hratt flatarmál hrings eykst þegar radíus hans er 3. |
22. dæmi: | Reiknaðu hversu hratt rúmmál kúlu eykst þegar radíus hennar er 2. |
23. dæmi: | Jafna frjáls falls á Mars er s = 1,86 t2 metrar á t sekúndum. Gerum ráð fyrir að steini sé varpað fram af 200 metra háum kletti. Reiknaðu hraða hans eftir 1 sekúndu. |
24. dæmi: | Jafna frjáls falls á Júpíter er s = 11,44 r2 metrar á t sekúndum. Gerum ráð fyrir að steini sé varpað fram af 500 metra háum kletti. Reiknaðu hraða hans eftir 2 sekúndur. |
25. dæmi: | Hefur graf fallsins f(x) snertil í origo - þ.e. í punktinum (0,0)? Færðu rök fyrir svarinu. |
26. dæmi: | Hefur graf fallsins g(x) snertil í origo? Færðu rök fyirr svarinu. |
27. dæmi: | Hefur fallið f(x) lóðréttan snertil í origo? Færðu rök fyrir svarinu. |
28. dæmi: | Hefur fallið U(x) lóðréttan snertil í punktinum (0,1) ? Færðu rök fyrir svarinu. |