GÓP-fréttir

Bls.
112-123

Námsmarkmið áfangans STÆ-3003
Kennslubók:
Thomas' CALCULUS - ISBN 0-201-44141-1

Kafli 1: 03 Markgildi þegar x -> oo

Yfirlit yfir þau atriði sem ætlast er til að nemendur hafi á valdi sínu þegar þeir ljúka námi í þessum kafla. Athugaðu að sleppt er þeim atriðum í lok kaflans þar sem gert er ráð fyrir að lausnir séu fundnar með aðstoð öflugs vasareiknis eða tölvu.

Skil-
grein-
ingar
Nemendur geti skilgreint (=útskýrt)  hugtökin:
markgildi f(x) þegar x stefnir á oo , markgildi ræðra falla af x þegar x stefnir á óendanlegt, aðfellur: lóðfellur, láfellur og skáfellur,
Kunna
utan
Nemendur kunni utan að
  • markgildisreglurnar þegar x stefnir á óendanlegt,
Reikni-
aðferð-
ir
Nemendur geti með reikningi eða/og samfelldum rökstuðningi: 
  • reiknað markgildi ræðra falla þegar stig margliðu í teljara lægra en, jafnhátt og hærra en stig margliðu í nefnara,
  • reiknað jöfnu aðfellu - t.d. með margliðudeilingu - þegar stig margliðu í teljara er einum hærra en stig margliðu í nefnara, 
  • kannað ræða fallið f(x) sem hefur eitt eða fleiri banngildi,

Efst á þessa síðu * Forsíða