GÓP-fréttir

Bls.
147-160

Námsmarkmið áfangans STÆ-3003
Kennslubók:
Thomas' CALCULUS - ISBN 0-201-44141-1

Kafli 2: 01 Afleiðan sem fall

Yfirlit yfir þau atriði sem ætlast er til að nemendur hafi á valdi sínu þegar þeir ljúka námi í þessum kafla. Athugaðu að sleppt er þeim atriðum í lok kaflans þar sem gert er ráð fyrir að lausnir séu fundnar með aðstoð öflugs vasareiknis eða tölvu.

Skil-
grein-
ingar
Nemendur geti skilgreint (=útskýrt)  hugtökin:
f'(x), afleiða, diffrun, diffurkvóti, f''(x), f'''(x), f(n)(x), vinstri afleiða, hægri afleiða, meðalgildisregla afleiðunnar, ólík táknun afleiðu/diffurkvóta,  
Kunna
utan
Nemendur kunni utan að
  • skilgreiningu afleiðu: f'(x) = limh->0[f(xo+h) - f(xo)]/h
  • fall sem er diffranlegt í punkti er samfellt í þeim punkti,
  • afleiðurnar: D(k) = 0, D(xn) = (n.xn-1), D(k.xn) = k.n.xn-1
  • regluna um afleiðu diffranlegs falls sem margfaldað er með fastanum k {D[k.f(x)] = k.f'(x)}
  • regluna um afleiðu summu tveggja diffranlegra falla {D[f(x) + g(x)] = f'(x) + g'(x)}
  • aðferð til að reikna hnit þess punkts á grafi fallsins f(x) þar sem snertill er láréttur,
Sann-
anir
Nemendur geti   
  • rökstutt að fall sé - eða sé ekki - diffranlegt í punkti,
Reikni-
aðferð-
ir
Nemendur geti með reikningi eða/og samfelldum rökstuðningi: 
  • reiknað afleiðu margliðu,
  • reiknað hallatölu og jöfnu snertils til margliðu í tilteknum punkti,

Efst á þessa síðu * Forsíða