GÓP-fréttir

Bls.
187-198

Námsmarkmið áfangans STÆ-3003
Kennslubók:
Thomas' CALCULUS - ISBN 0-201-44141-1

Kafli 2: 05 Keðjureglan

Yfirlit yfir þau atriði sem ætlast er til að nemendur hafi á valdi sínu þegar þeir ljúka námi í þessum kafla. Athugaðu að sleppt er þeim atriðum í lok kaflans þar sem gert er ráð fyrir að lausnir séu fundnar með aðstoð öflugs vasareiknis eða tölvu.

Skil-
grein-
ingar
Nemendur geti skilgreint (=útskýrt)  hugtökin:
samsett fall, afleiða samsetts falls, keðjuregla afleiðureiknings/diffrunar,
Kunna
utan
Nemendur kunni utan að
  • keðjuregluna um afleiðu samsetts falls:
    D(f(g(x)) = f'(g(x)) * g'(x)
Sann-
anir
Nemendur geti   
sannað keðjuregluna með því að nota aðferðina í Appendix 3 á bls. 1150 eða eins og gert er í ábendingum í leiðbeiningunum: Keðjureglan - einföld útleiðsla 
Reikni-
aðferð-
ir
Nemendur geti með reikningi eða/og samfelldum rökstuðningi: 
  • notað keðjuregluna til að diffra föll sem líta má á sem samsett föll.

Efst á þessa síðu * Forsíða