Forsíða
Ofvirknivefur
Ofvirknibók 
Kjörþögli
Kærleiksspilið


Ragna Freyja
Betri mynd! Umsagnir

Ofvirknibókina má skoða,
lesa og
hagnýta sér
- og einnig kaupa

meðal Bóka og rita og myndabóka

GÓPfrétta

 

Guðrún
Þórðar-
dóttir
sérkennari:
Ofvirkni - bók fyrir kennara og foreldra
Í Glæðum, tímariti Félags íslenskra sérkennara, 2. tbl. 11. árg. 2001, bls. 59 - 60, skrifaði Guðrún Þórðardóttir, sérkennari, umsögn um Ofvirknibókina. Umsögnin birtist hér í heild með góðfúslegu leyfi Guðrúnar og tímaritsins Glæða. 
Grétar L.
Marinósson
Ritfregn um Amorsráð

Ritfregn Grétars L. Marinóssonar, birtist í Netlu - Veftímariti um uppeldi og menntun Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla Íslands þann 9. janúar 2002.  

Hér finnurðu ritfregnina í Netlu en því miður skilast séríslensku bókstafirnir ekki kurteislega á skjá ritara og því fylgir textinn hér - læsilegur:

>> Ritfregn um Amorsráð <<

GÓP spyr: Hvernig líkar þér bókin?
22.01.03
Anna
Sigurðardóttir
Mig langar að þakka frábæra þjónustu varðandi kaupin á þessari bók. Ofvirknibókin er mjög aðgengileg og góð aflestrar. Ég fagna þessari bók - hún mun hjálpa mörgum.
10.09.02
Berglind
Ólafsdóttir
*
Forgreitt á
höfuðborgar-
svæðinu
Greitt og pantað .: 10. september 2002 15:57
Afgreiðsla tilkynnt: 10. september 2002 17:09
   -         -
Bókin barst mér bara skömmu síðar - amk fyrir kl. 18.00. Sannarlega skjót og góð þjónusta.
Ég var heldur ekkert að hangsa - er búin að lesa bókina - hún stóð fyllilega undir þeim væntingum sem ég hafði.
Með kveðju, Berglind Ólafsdóttir
25.06.02
Guðríður
Haraldsdóttir,
blaðamaður
á Vikunni
Vikan - 24. tbl. 64. árg. 25. júní 2002
Bók  Vikunnar: Ofvirknibókin
eftir Rögnu Freyju Karlsdóttur
Þessi bók er fyrir bæði foreldra og kennara og til þess ætluð að auka þekkingu og skilning á heimi ofvirkra barna (barna með AMO). Einnig er afar góður viðauki aftast þar sem börn með AMO fá góð ráð. Örsögurnar eru frábærar en þær koma beint úr hugarheimi barnanna sjálfra.

Í einum kaflanum eru t.d. kennd rétt viðbrögð við óæskilegu atferli og í öðrum bent á ýmsar atferlismótandi aðgerðir. Ótrúlegt hvað þolinmæði, skilningur og hrós geta skilað miklu á meðan skammir og refsingar geta jafnvel eyðilagt líf ofvirks barns.

Ég mæli hiklaust með þessari bók. Hún er aðgengileg og skrifuð af mikilli hlýju í garð ofvirkra barna. Loksins!

12.12.01
Kristín
Aðalsteins-
dóttir
14. október '01
Kæra Ragna Freyja
Það er mikið gleðiefni að hafa fengið bókina þína "Ofvirkni" í hendur. Til hamingju og takk. Hún verður notuð við kennslu við Háskólann á Akureyri í kennaradeild. Mikill fengur.
11.12.01
Arndís
Friðriksdóttir
Þetta er dásamleg bók og ættu allir sem vinna með börnum með AMO að lesa hana. Ég hef lesið hana tvisvar og á örugglega eftir að lesa hana oftar mér til umhugsunar og stuðnings. Takk fyrir frábæra bók.
15.11.01
Guðríður
Adda
Ragnarsdóttir
Ég var að kaupa og lesa Ofvirknibókina þína.
Mikið er hún yndisleg.
Sérstaklega vil ég nefna örsögurnar og þetta yfirbragð hlýju og notalegrar kankvísi.

Auk sérfræðiþekkingar þinnar og mannkosta, þá ber efni bókarinnar glögglega vott um langa og farsæla reynslu þína í starfi.

Kærar þakkir fyrir að skrifa bókina og til hamingju með hana. - Hún mun örugglega koma mörgum að gagni.
10.10.01
Hrafnhildur
Gunnarsdóttir
Bókin er eins og himnasending og er við hliðina á biblíunni á náttborðinu. Ég á 2 stráka með amo og fleira og við lesum hana saman. Þeir segja um bókina: Hvernig getur einhver vitað nákvæmlega hvernig okkur líður og vitað hvernig er hægt að laga skólann?
14.09.01
Kristín
Magnúsdóttir
Bókin kom í gærkvöldi og ég byrjaði strax að lesa. Þær síður sem ég er búin með eru frábærar. Þvílík heppni að komast í þessa bók. Hún opnar mér svo marga nýja möguleika og skilning. Þessa bók á ég eftir að lesa aftur og aftur. Hún verður mér stoð og stytta og hvatning á erfiðum stundum. Bestu þakkir.
08.09.01
Ingunn
Sigurðardóttir
Ég kynnti hana á fyrsta kennarafundi og hvatti bæði skólasafnskennarann og aðra til að kaupa hana. Veit að nú þegar hafa nokkur eintök verið pöntuð, bæði á bókasafn skólans og til einkanota, og er það vel, enda er efni hennar áhugafólki um málefni þessarra barna jafn kærkomið og vatn er þyrstum manni í eyðimörk. Hún er svo aðgengileg og framsetningin svo jákvæð og hlýleg.
01.08.01
Fríða
Gylfadóttir
Mér fannst bókin mjög góð, og velkomin því mér hefur ekki fundist mikið um feita bita í íslensku bókarflórunni, um ofvirkni.
Bókin er mjög aðgengileg og hjálpaði mikið til að staðfesta hvað maður er að gera rétt og hvað mætti betur fara.
Ef eitthvað er hefði ég viljað að hún höfðaði meira og beinna til foreldra.
Annars góð bók og ég mæli með henni, - keypti meira að segja 2 til að gefa ömmunni.
Kveðja, Fríða.
** **

Efst á þessa síðu * Forsíða * Ofvirknivefur * OfvirknibókUmsagnir