Forsíða


GGí+PS

*

 Frumherji
í
bókavörslu

*

Níræð

*

Sjá
mynda-
safn
 

 

 Kveðjusíða

Guðrún Gísladóttir

 
f. 5. sept. 1920 - d. 2. júlí 2013

*  *  *

Yfirlit í stafrófsröð

Ævi-
stiklur
 

Guðrún Hólmfríður Gísladóttir - f. 5. sept. 1920 á Eyrarbakka, d. 2. júlí 2013 á Landspítalanum við Hringbraut. 

Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Ólafur Pétursson, f. 1.5.1867 - d. 19.6.1939, héraðslæknir á Eyrarbakka, og Aðalbjörg Jakobsdóttir, f. 30.10.1879 - d. 19.11.1962. Af börnum þeirra komust átta upp, Guðrún, sex bræður og ein fósturdóttir og nú eru þau öll fallin frá. Hin voru Pétur Ólafur, garðyrkjubóndi og bókavörður á Eyrarbakka f. 1900, Jakob, rafmagnsverkfræðingur f. 1902, Guðmundur, læknir, f.1907, Ketill, lögfræðingur, f. 1911, Ólafur, rafmagnstæknifræðingur, f. 1913, Sigurður, f.1916 og Ingibjörg Sigvaldadóttir, f. 1929. Þótt aðeins fimm þeirra ættu afkomendur er fjöldi niðja þeirra Gísla og Aðalbjargar nú kominn yfir stórt hundrað.

Árið 1939 giftist hún Pétri Sumarliðasyni, f. 1916 - d. 1981, kennara. Börn þeirra eru Gísli Ólafur, f. 1940, kvæntur Rögnu Freyju Karlsdóttur, Bjarni Birgir, f. 1942, kvæntur Helgu Maríu Hermansen, Vikar Pétursson, f. 1944, kvæntur Vilborgu Sigurðardóttur, Pétur Örn, f. 1949, kvæntur Hólmfríði Þórisdóttur og Björg, f. 1961 gift Friðgeiri Magna Baldurssyni.

Guðrún lauk stúdentsprófi úr stærðfræðideild MR árið 1941, BA-prófi í bókasafnsfræði frá HÍ 1972 og varð löggiltur bókasafnsfræðingur 18. sept. 1986.

Guðrún var forstöðumaður bókasafns Orkustofnunar. Hún beitti sér fyrir samstarfi bókasafna og í félagsmálum bókavarða. Var í stjórn Bókavarðafélags Íslands, stofnfélagi og í stjórn Félags bókasafnsfræðinga, í stjórn Félags bókavarða í rannsóknarbókasöfnum og í félagi um skjalastjórn.

Guðrún hafði áhuga fyrir þjóðfélagsmálum og lagði sitt lið til að bæta réttarstöðu kvenna og efla þátttöku þeirra í mótun og stjórnun samfélagsins. Hún var í stjórn Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og í stjórn Kvenréttindafélags Íslands. Hún var í nefndinni sem undirbjó Kvennafrídaginn 24. október 1975 og starfaði um árabil í hópi um varðveislu og framgang Kvennasögusafns Íslands.

Guðrún var kjörin heiðursfélagi Kvenréttindafélags Íslands, heiðursfélagi Félags um skjalastjórn og heiðursfélagi Bókavarðafélags Íslands.

Útför Guðrúnar Gísladóttur fór fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. júlí.  

Sjá einnig >> http://www.gopfrettir.net/open/GGi

Fjölskyldumyndir
og
Gamlar myndir af fólki í Gamla læknishúsinu á Eyrarbakka

* Aftur í Yfirlit
Jóna
Hrönn
Bolladóttir
prestur

Minningarorð um Guðrúnu Gísladóttur

Guðrún fæddist á Eyrarbakka þann 5. september árið 1920 og var skírð Guðrún Hólmfríður. Í lífi sínu og starfi notaði hún yfirleitt ekki það millinafn. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Ólafur Pétursson héraðslæknir á Eyrarbakka og Aðalbjörg Jakobsdóttir húsmóðir. Guðrún segir svo frá í viðtali sem doktor Sigrún Klara Hannesdóttir tók við hana árið 2010:

,,Við vorum sjö systkinin, sex bræður og ég og á heimilinu var líka yngri fóstursystir. Eldri fóstursystir mín og systir dóu úr veikindum þegar ég var fimm ára, en bræðurnir voru hraustir og miklir athafnamenn. Heimilið var mjög gestkvæmt og alltaf nóg rými fyrir gesti og gangandi.“

Við þetta má líka bæta að á heimilinu bjuggu einnig tvær móðursystur Guðrúnar sem höfðu mikil áhrif á líf hennar. Þær hétu Jakobína, sem var kennari við barnaskólann, og Herdís sem var ráðin til að hjálpa systur sinni með stórt og umsvifamikið heimilið á Eyrarbakka en auk þess þegar við varð komið leiðbeindi um handavinnu nær og fjær og vann að stofnun Sambands sunnlenskra kvenna. Þessum öflugu konum fylgdi líka margt fólk, fyrir utan alla þá sem komu til að leita sér lækninga. Það má því segja að læknishúsið hafi verið nokkurs konar félagsheimili í þorpinu og hafði það að sjálfsögðu mótandi áhrif á Guðrúnu í uppvextinum.

Guðrún hlaut sína grunnskólamenntun á Eyrarbakka og að henni lokinni fluttist hún til Reykjavíkur þar sem Aðalbjörg Sigurðardóttir, frænka hennar í Laugarnesinu, var henni til halds og traust. Á þeim árum var leiðin til mennta oft krókótt fyrir sveitabörn landsins. Krókur Guðrúnar var sá að hún var fyrsta árið við gagnfræðaskólann á Ísafirði sem veitti henni næsta árið aðgang að öðrum bekk gagnfræðaskólans í Reykjavík - sem að lokum gaf henni rétt til að hefja nám í þriðja bekk stærðfræðideildar Menntaskólans í Reykjavík árið 1936. Í tilefni 90 ára afmælis Guðrúnar ávarpaði yngsta barnið og einkadóttirin, Björg, móður sína og sagði m.a.

,,Hvað varðar mömmu þá er óhætt að segja að sem ung stúlka stefndi hún ekki á hefðbundnar slóðir. Hún valdi að stíga inn á menntabrautina og stefna á stúdentsprófið sem var alls ekki eins algengt 1936 og það er nú. Það var ekki bara að hún færi í menntaskóla, heldur fór hún á stærðfræðibraut, og svo átti hún barn á meðan hún var enn í skóla. Hún lét það samt ekki stoppa sig, heldur tók ársfrí og kom svo aftur og kláraði stúdentsprófið 1941. Þegar ég fæddist var hún orðin 41 árs. Hún hafði alltaf unnið úti og hætti því ekki heldur hóf stuttu seinna það sem nú væri kallað nám með vinnu og lauk BA-gráðu í bókasafnsfræði 1972. Þessi eiginleiki hennar að fara ekki hefðbundnar slóðir, og þar með láta ekki umhverfið hafa áhrif á hvað þú tekur þér fyrir hendur og hvert þú stefnir hefur verið mér leiðarljós í gegnum lífið. Áherslan á að lifa ekki í gegnum eiginmanninn og að láta börn og bú ekki hamla því að verða sjálfstæður einstaklingur, með sérhæfða þekkingu, opinn fyrir nýjungum og þróun í starfi, hefur verið mér fyrirmynd sem ég hef verið óspör með orðum og gjörðum að miðla til minna dætra.“

Systkinin frá Eyrarbakka stóðu þétt saman og lögðu hvert öðru lið eftir þörfum. Á fyrstu námsárunum í Reykjavík bjó hún hjá Jakobi, bróður sínum, og liðsinnti honum með heimilið og unga syni hans en hann hafði misst konu sína. Seinna sagði hún að þótt hún hefði margt lært í uppvextinum hefði hún aldrei lært matargerð og heimilishald - þótt það hefði bæði þá og síðar gengið þolanlega.

Á menntaskólaárunum kynntist hún Pétri Sumarliðasyni sem þá var í Kennaraskólanum. Þau giftust hjá sýslumanni 1939 og vorið 1940 fæddist þeim elsta barnið Gísli Ólafur. Eftir að drengurinn fæddist fór Guðrún með hann austur á Eyrarbakka. Þar var stórfjölskyldan og alltaf nóg rými fyrir ný börn. Þegar næsta skólaár hófst skildi hún drenginn eftir í umsjá móður sinnar og fór til Reykjavíkur til að ljúka stúdentsprófinu. Eftir það fjölgaði í hópnum. Árið 1942 fæddist annar sonurinn, sá þriðji 1944 og sá fjórði árið 1949. Næstur Gísla Ólafi er Bjarni Birgir þá Vikar og Pétur Örn. 12 árum síðar fæddist svo dóttirin Björg.

Þau Pétur og Guðrún bjuggu fyrstu árin í Gamla Læknishúsinu á Eyrarbakka, ásamt systrunum Aðalbjörgu sem þá var orðin ekkja og Herdísi. Einnig bjuggu þar bræður Guðrúnar þeir Pétur og Sigurður, sem urðu eftir þegar þau hin fluttu búferlum lýðveldisárið 1944. Systurnar og unga fjölskyldan bjuggu næstu fjögur árin saman í íbúð við Skúlagötu í Reykjavík og Aðalbjörg bjó með þeim á meðan hún lifði.

Pétur var kennari og starfaði auk þess tvívegis sem skólastjóri úti á landi. Á árunum frá 1948 til 1950 var hann skólastjóri Fljótshlíðarskóla og þau bjuggu þá á efri hæð skólahússins. Árið 1952 fluttu þau í Kópavog þar sem strjál sumarhúsabyggð var að byrja að þéttast. Árið 1955 bauðst Pétri skólastjórn við barnaskólann á Fáskrúðsfirði. Þá vildi Raforkumálaskrifstofan ekki missa af Guðrúnu og bauð henni fastráðningu en hún hafði þá langa hríð verið lausráðinn starfsmaður. Niðurstaðan varð sú að þau ákváðu að Pétur færi einn austur. Þar var hann tvö skólaár og kom heim í fríum. Guðrún vann fulla vinnu en þá voru drengirnir það uppkomnir að þeir björguðu sér að mestu sjálfir. Pétur var loks fastráðinn við Austurbæjarskólann og kenndi í Reykjavík til dauðadags. Hann lést árið 1981 - á sextugasta og fyrsta afmælisdegi Guðrúnar.

Guðrún vann alltaf úti eftir því sem verkefni féllu til og heimilisstörfin leyfðu. Á það reyndi til dæmis þegar hún, fáum árum eftir að hún tók stúdentsprófið, var fengin til að kenna stærðfræði við Kvennaskólann einn vetur. Henni tókst að fá pláss á barnaheimili nokkra stund en að öðru leyti voru drengirnir í umsjá ömmunnar. Á árunum 1946 og 47 fór hún að vinna lausastörf við útreikninga og teikningar fyrir Raforkumálaskrifstofuna sem síðar var breytt í Orkustofnun. Þar reyndust bækur vera í óreiðu og áður en mjög langt um leið hafði hún fengið það verkefni að skrá bókakostinn og skipuleggja uppröðun. Það varð upphafið að þeim þætti í hennar lífsstarfi.

Guðrún gekk í Bókavarðafélagið og var þar í stjórn 1964-1970, hún var einnig ein af stofnendum félags bókasafnsfræðinga árið 1973 og í fyrstu stjórninni. Guðrún starfaði ötullega að jafnréttismálum. Herdís, móðursystir hennar, var fyrsti formaður Sambands sunnlenskra kvenna og í gegnum þau störf kynntist Guðrún kvenréttindamálum. Er hún svo flutti til Reykjavíkur 1944 gekk hún í Kvenréttindafélag Íslands og var í stjórn þess frá 1952. Tvö baráttumál sem henni var tíðrætt um voru að konur fengju sömu laun fyrir sömu vinnu og að eiginkonur fengju að hafa aðskilið skattaframtal frá eiginmanni.

Guðrún þurfti sjálf að taka þessa baráttu en þegar hún vann hjá Orkustofnun var tekin upp svokölluð óunnin yfirvinna. Hana fengu karlarnir en ekki konurnar. Skýringin var sú að óunna yfirvinnu fengju þeir sem þyrftu að lesa sér til og halda við þekkingu sinni. Þetta sætti Guðrún sig ekki við og lét sína yfirmenn vita að hún sem forstöðumaður bókasafnsins þyrfti einnig að lesa sér til ekki síður en karlarnir. Það fór því svo að Guðrún fékk sína óunnu yfirvinnu greidda eins og karlarnir sem hún vann með - og stuttu síðar fylgdu aðrar starfskonur í kjölfarið.

Guðrún var mjög virk í félagsmálum og kom víða við á lífsleiðinni. Hún sagði ætíð „Ef aðrir geta það, þá hlýt ég að geta það“ og má segja að þessi lífssýn hafi gert hana að þeim frumkvöðli sem hún var. Guðrún var t.d. í stjórn Menningar-og friðarsamtaka íslenskra kvenna og í nefnd sem undirbjó Kvennafrídaginn 1975 og Kvennavikuna 1980. Hún hlaut margvíslegan heiður fyrir lífsstarf sitt. Má þar nefna að hún var heiðursfélagi í Kvenréttindafélagi Íslands og Félagi um Skjalastjórn auk þess sem hún var gerð að heiðursfélaga í Bókavarðafélagi Íslands árið 1997.

Guðrún bjó við góða heilsu ein í íbúð sinni í Hamraborg í Kópavogi allt til enda - með dyggum stuðningi barna sinna. Hún þakkaði sundferðum og sjúkraþjálfun líkamlegt atgervi og háum aldri.

Þegar farið er yfir lífshlaup Guðrúnar Gísladóttur blasir við að hún var ósérhlífin og mikill frumkvöðull í sér. Hún var líka mamma, amma og langamma sem lét sig varða hag og aðstæður fjölskyldu sinnar og annarra þeim tengdum. Hún var í sannleika ein af þessum fósturlandsins Freyjum sem við eigum svo mikið að þakka.

Kærar kveðjur eru frá niðjum hennar erlendis, þeim Freyju Rún og Írisi Hild í Lillehammer í Noregi og í Svíþjóð þeim Lind og Pétri í Gävle og Guðrúnu Andreu og Óðni í Uppsala.

Kvenréttindafélag Íslands biður fyrir kveðju með kærri þökk fyrir fórnfýsi og vel unnin störf í þágu félagsins.

Guðrún Gísladóttir, far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Amen.

* Aftur í Yfirlit
Gísli
Ólafur
Pétursson

"Góðu vinir - kærar þakkir fyrir hlýjar kveðjur við fráfall móður okkar.

Þótt maður sé ekki alveg nýkominn á áttræðisaldurinn (73ja ára) verður maður sem móðurlaust barn - eins og segir í kvæðinu - þegar hlýr og öflugur ráðgjafi hverfur úr heimavarnar-
liðinu."

Þegar hlýr og öflugur ráðgjafi hverfur úr heimavarnarliðinu

Lokið er langri ævi ötullar liðskonu leitarinnar að jafnrétti og friði. Hún lagði víða gjörva hönd að í þeirri baráttu, laðaði fólk til samstarfs og til hennar var þeim, sem í einhverri eldlínu lífsins stóðu, gott að sækja samræðu og ráð.

Tveimur mánuðum eftir lýðveldisstofnunina á Þingvöllum fluttu systurnar Aðalbjörg amma og Herdís frá Eyrarbakka til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu saman með Pétri og Guðrúnu og okkur sonum þeirra sem urðum þrír um haustið. Þetta var gagnkvæmt nytsöm ráðstöfun. Aðalbjörg gat sinnt um okkur þegar þurfti og í móti kom margvíslegt liðsinni við þær systur í reykvíska þéttbýlinu. 

Í Reykjavík bjuggu mörg náin skyldmenni okkar. Þar voru systkini Aðalbjargar nema Hálfdan í Mýrarkoti, börn hennar nema Pétur og Sigurður á Eyrarbakka, auk fjarskyldara ættfólks en í þeirra hugum var Aðalbjörg lykilmanneskja. Á heimilinu var því mikill gestagangur rétt eins og verið hafði á Eyrarbakka. Þetta varð til þess að mikil tenging varð milli allra barnabarna þessara eldri systkina sem hefur haldið vel í sjötíu ár. Þetta var líka mikið umræðu og menningarheimili, bókmenntir ræddar og ný og gömul skáld í hávegum höfð. Og þótt ekki kysu allir sama stjórnmálaflokkinn voru viðhorfin steypt í sama afli. Jafnrétti kynjanna var umræðulaust sjálfsagt í hverju og einu og draumur um bætt lífskjör almennings var sameiginlegur.

Allir hinir fullorðnu höfðu hug á að bæta heiminn. Þetta var ungt og öflugt baráttufólk og lét sig ekki muna um að sækja fundi og leggja sitt af mörkum til að láta gott af sér leiða til bráðar og lengdar. Þegar frændfólk kom utan af landi þrengdum við okkur saman og rýmdum til svo það gæti haft þokkalega dvöl. Þrátt fyrir lítil efni fagnaði heimilið gestum og gangandi rétt eins og verið hafði í Gamla læknishúsinu á Eyrarbakka.

Það var í þessu nærhverfi sem við bræðurnir uxum úr grasi. Nærvera frændfólksins var svo sjálfsögð að við gerðum okkur ekki grein fyrir því hve sérstök hún var og hve hún var í sjálfu sér mikil félagsleg auðlegð sem við höfum búið að æ síðan.

Það var líka eitt af því sjálfsagða að móðir okkar var alltaf með mörg járn í eldinum. Stundum gátum við verið til hjálpar en gerðum oft mesta gagnið með því að una að okkar - og mitt í erlinum var hún að morgni búin að sauma, breyta og bæta fötin og allt komið í besta lag. 

Hugurinn dvelur við líf þessarar baráttukonu sem strax leitaði leiða til lausnar upp komins vanda en velti sér aldrei upp úr efum og hefðum. Hún lagði öllum gott orð, leitaði umræddu fólki málsbóta og skaut sér aldrei undan ábyrgð. Hún var ákveðin og um leið hlýleg og tók virkan þátt í því að leiða menn saman og stofna til samstarfs.

Það lék ekki allt við hana en lífsýn hennar kvartaði ekki undan því sem hafði gerst og ekki varð undan vikist heldur leitaði strax að bestu leið áfram. Það er dýrmætt að eiga aðgang að persónu eins og henni og ómetanlegt að hafa átt hana sem móður.

Þegar hún leit til baka minntist hún skemmtilegra viðburða og góðs fólks sem hún hafði verið samtíða og starfað með, góðra vina í baráttunni og á gleðistundum - og indælla niðja sinna. Þegar við lítum til baka er efst í huga þakklæti til hennar fyrir frábæra leiðsögn og samferð í ævintýri lífsins. 

Pétur Sumarliðason, faðir okkar, orti:

Svo ljúft er innan þinna hljóðu veggja
sem lófi mjúkur ljúki um augu mín –
þú vefur hug minn hljóðum, mjúkum möskvum
af mildi, ástúð, angurværri þögn –
Hér stendur stundin kyrr.

Gísli Ólafur Pétursson

* Aftur í Yfirlit
Friðgeir
Magni
Baldurs-
son

Tengdamóðir mín

er fallin frá, tæplega 93 ára, eftir stutta sjúkrahúslegu. Þrátt fyrir háan aldur þá vorum við einhvern veginn ekki viðbúin. Svo margt enn ósagt, ógert.

Guðrún Hólmfríður Gísladóttir var engin venjuleg kona, prýdd kostum sem margur vildi bera. Sjálfstæð, með einarðan skýran vilja og skoðun. Baráttukona, trú málstaðnum. Hún var alla tíð mikil félagsvera og lagðist gjarnan á áranar þar sem helst þurfti aðstoðar með. Þegar litið er um öxl og lífshlaup hennar skoðað þá kemur berlega í ljós persónan Guðrún Gísladóttir. Hugur hennar beindist strax inn á frekar óhefðbundnar slóðir. Læknisdóttirin austan frá Eyrarbakka valdi sér menntabrautina og lauk stúdentsprófi af stærðfræðibraut MR árið 1941 þrátt fyrir að hafa eignast sitt fyrsta barn meðan á námi stóð. Hún var útivinnandi í fullu starfi þegar yngsta barnið fæddist, þá orðin 41 árs. Ekki hélt það aftur af henni. Hún hélt áfram starfi og hóf stuttu síðar það sem nú væri kallað nám með vinnu og lauk BA-gráðu í bókasafnsfræði 1972. Eflaust muna flestir eftir Guðrúnu á vettvangi félagsmála. Réttindamál kvenna stóðu henni alla tíð mjög ofarlega. Hún var einn stofnenda Félags bókasafnsfræðinga og Félags um skjalastjórn.

Þó ekki verði gerð tæmandi skil á upptalningu verka Guðrúnar Gísladóttur hér, það gera aðrir, þá er óhjákvæmilegt að geta mannkosta hennar sem persónu og leiðbeinanda. Vissulega var hún baráttukona og föst á skoðun sinni. Það var gaman að rökræða við hana um ýmis mál og það gerðum við alloft. Þrátt fyrir þá natni og orku sem félagsmálin tóku þá var hún líka móðir og amma. Hún skilur eftir sig stóran hóp niðja og aldrei man ég eftir öðru en að hún gæfi öllum pláss og athygli til að deila með sögum, spilum eða hverju öðru sem á kallaði. Guðrún reyndi alltaf að draga fram það jákvæða í fari þeirra einstaklinga sem voru til umræðu. Margir hafa nefnt hvernig hún á mjög hvetjandi hátt hafi velt upp nýjum hugmyndum um framtíðarplön þeirra sem leituðu ráða hjá henni eða báru undir hana hugmyndir sínar eða væntingar. Allir fengu athygli hennar og uppörvun.

Ég átti því láni að fagna að vera samferða Guðrúnu í nær 30 ár. Ekki aðeins sem tengdasonur heldur naut ég einnig leiðbeininga hennar og stuðnings. Á námsárum mínu erlendis sinnti hún þessu óhjákvæmilega amstri sem fylgir námsmönnum. Ekki aðeins sinnti hún þessu af sóma og dugnaði heldur einnig sýndi hún áhuga á námi mínu með símtölum eftir próf til að ræða málin. Þá var ekki til Facebook eða skype. Hún viðhélt þessum tengslum í gegnum lífið með því að vera vel inni í þeim viðfangsefnum sem ég hef sinnt og gaf sér tíma til að ræða þau mál við mig. Þessi samtöl glæddu viðfangsefnin auknu lífi og glöddu mig. Hennar verður sárt saknað.

Það er hverju orði sannara sem sagt hefur verið. Hún var góð fyrirmynd annarra og fjölmargir sóttu í þá fyrirmynd. Ég þakka Guðrúnu tengdamóður minni samfylgdina og bið Guð að blessa minningu hennar um leið og ég votta þeim mörgu sem eiga um sárt að binda við fráfall hennar mína dýpstu samúð.

Friðgeir Magni Baldursson

* Aftur í Yfirlit
Guðrún
Andrea
Friðgeirs-
dóttir

Elsku amma,

þú hafðir alltaf sterkar skoðanir á minningargreinum svo ég geri mitt besta að skrifa eina góða fyrir þig.

Ég minnist þess að hafa í grunnskóla átt að skrifa ritgerð um fyrirmynd í mínu lífi og eina manneskjan sem kom til greina að skrifa um í mínum huga varst þú. Þú varst svo sterk og ákveðin, þú fórst í menntaskóla og háskóla þótt slíkt hefði verið fátítt á þínum tíma, í bæði skiptin með lítil börn heima. Þú varst baráttumanneskja fyrir kvenréttindum og lést að þér kveða í mörgum mikilvægum málefnum. Þú varst alltaf svo jákvæð og hafðir alltaf bara góða hluti að segja um náungann, jafnvel þótt manni sjálfum fyndist hann ekki alltaf eiga það skilið. Það sem ég dáðist þó mest að var að þú varst alltaf jafn hress, og alltaf á fullri ferð. Þú ferðaðist, fórst í sund, bókbandið, hittir gömlu skólafélagana og margt fleira. Þú lést ekki háan aldur aftra þér frá að gera það sem þú vildir, heldur hélst þér ungri með því að gera það samt.

Þú hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu og við átt margar góðar stundir saman. Þegar ég byrjaði í skóla og var hjá þér á hverjum degi eftir skóla, þú kenndir mér að spila rommý, að prjóna og sauma út. Ofarlega í huga eru líka minningarnar um málsháttakökurnar sem ég fékk þann heiður að hjálpa þér með um hver jól. Þú varst alltaf svo mikil bókamanneskja og það smitaðir þú af þér, við fórum á bókasafnið og lásum saman bækur. Svo var alltaf hægt að treysta á að fá góða bók í jólagjöf frá þér.

Þrátt fyrir allar stundir sem við höfum átt saman þá var það fyrst þegar ég flutti til Svíþjóðar að ég kynntist þér almennilega, ekki bara sem ömmu minni heldur sem konunni sem þú varst. Við töluðum oft og lengi á Skype þetta síðasta ár eftir að Markús fæddist. Við töluðum um daginn og veginn, um framtíðina og þú sagðir mér frá tímunum þegar þú varst ung og áttir þín börn. Þér fannst alltaf jafn gaman að sjá Markús og hrósaðir honum óspart, núna síðast þegar hann var að sýna þér hvað hann væri orðinn duglegur að labba. Ég talaði við þig tvisvar í vikunni sem þú varðst veik og þú varst glöð og hress að venju og virkilega ánægð að heyra í okkur. Þú talaðir þó um að það hefði verið of langt síðan þú heyrðir í okkur síðast. Mér þykir virkilega vænt um þessar stundir sem við áttum saman á Skype og mun minnast þeirra með hlýhug.

Ég get bara sagt eins og ég skrifaði í ritgerðinni þegar ég var lítil: „Ég vona að ég verði eins og þú þegar ég verð stór.“ Hvíl í friði, elsku amma, þín er sárt saknað.

Guðrún Andrea Friðgeirsdóttir

* Aftur í Yfirlit
Magnea
Lillý
Friðgeirs-
dóttir

Elsku amma,

þú skipaðir ávallt stóran sess í lífi mínu, alveg frá því ég fyrst man eftir mér. Sem barn og unglingur eyddi ég ófáum stundum heima hjá þér og var heimili þitt mér alltaf sem athvarf og griðastaður. Hjá þér upplifði ég svo mörg eftirminnileg ævintýrin. Allt frá því að gramsa í gegnum gamlar læknisfræðibækur til þess að malla saman grænni köku án uppskriftar sem þú, af þinni endalausu góðmennsku og þolinmæði, hafðir þig í að borða. Þú varst til staðar til að fagna með mér öllum stærstu stundum lífs míns en varst ekki síður hlý og staðföst stytta á verri tímum. Þó að þú hafir áorkað marga aðdáunarverða hluti áður en ég komst til vits og ára þá munt þú í mínum huga ætíð standa uppúr sem einstaklega hlý, jákvæð, vitur og góð amma. Þú ráðlagðir mér um svo ótal margt og án þeirra ráðlegginga hefði ég ekki fyrir nokkurn mun viljað vera. Með óendanlega margar yndislegar minningar kveð ég þig með miklum trega og söknuði. Ég veit þó og vona að þú vakir yfir okkur og að sú hlýja og viska sem þú bjóst yfir verði okkur áfram vegvísir á lífsins leið.

Hugurinn ber mig nú hálfa leið
og hamingjan vegi alla.
Á ljúfar minningar lífs um skeið
læt ég blómsveiga falla.

                                      (Friðgeir Grímsson)

Magnea Lillý Friðgeirsdóttir

* Aftur í Yfirlit
Menningar
og
friðar-
samtök
íslenskra
kvenna
HINSTA KVEÐJA

Kveðja frá félögum í MFÍK.

Sofa blóm á engi
sofa blóm í túni
og útvið lækinn
lokar bláin auga.

Sefur lindadúnurt,
lækjasteinbrjótur
og bráföl draumasóley
drúpir þungu höfði.

Sefur ung bláklukka
og ilmrík brönugrös
blunda við atlot
blævar um óttu.
                               (Sigríður Einars frá Munaðarnesi)

Þakkir fyrir áralangt starf í þágu mannréttinda og friðar.

Guðrún Hannesdóttir

* Aftur í Yfirlit
Sigurlaug
Ólöf
Guðmunds-
dóttir
og
félagar
á
Gjábakka
Kveðja

Gott skap, þolinmæði og hlý vinátta eru þau orð, sem mér koma fyrst í hug, þegar ég sest niður til að skrifa nokkur kveðjuorð um þessa vinkonu mína, Guðrúnu Gísladóttur.

Við kynntumst þegar við vorum báðar í rammavefnaði hjá Guðrúnu Vigfúsdóttur í félagsstarfi aldraðra í Gjábakka í Kópavogi. Okkur kom strax vel saman og bárum saman bækur okkar í mynda- og litavali, og sóttum ráð hvor til annarrar. Henni lá aldrei á og hún var svo vandvirk, að hún rakti upp aftur og aftur þar til hún var ánægð með verkið. Síðasta myndin, sem hún lauk við í vor, var af húsinu hennar á Eyrarbakka, og þar var sannarlega ekki kastað til höndunum svo allt mætti vera sem líkast því sem hafði verið.

Guðrún var vel á sig komin þrátt fyrir aldurinn. Hún hafði stundað sund hvern morgun í mörg ár, en svo ákvað hún að koma einu sinni í viku til okkar í handavinnuna. Hún sagði að sér þætti svo gaman að koma og fá sér kaffi með okkur, og spjalla í þessum félagsskap. Hún var vel gefin kona, og hafði margt til málanna að leggja, og sagði okkur ýmsar sögur frá fyrri tímum. Heyrnardeyfð háði henni nokkuð, en þá var yfirleitt einhver, sem sagði henni frá umræðunni. Ég vona að hún hafi notið þess að vera með okkur, eins og við nutum þess að hafa hana í hópnum. Eins og segir í ljóðinu um Gjábakka:

„Félagsskap og vináttu vart er unnt að meta,
og vinnufúsar hendur á mörgu kunna skil.“
(SÓG)

Ég þakka af alhug þær góðu stundir og þá vináttu sem við Guðrún áttum saman og bið henni Guðs blessunar. Ég vil að endingu senda fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur, fyrir hönd okkar allra í handavinnuhóp Gjábakka.

Sigurlaug Ólöf Guðmundsdóttir

* Aftur í Yfirlit
Sturla
Friðriks-
son
Kveðja

Nú er bekkjarsystir okkar, Guðrún Gísladóttir, fallin frá. Við urðum stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1941. Eru rúm tvö ár síðan við héldum upp á 70 ára stúdentsafmæli okkar. Var þá Guðrún hrókur alls fagnaðar. Við samstúdentarnir höfum einnig haft þann sið að hittast reglulega í byrjun hvers mánaðar og drekka saman kaffi. Hefur þá margt verið spjallað og oft rætt um gamla tíma frá námsárum okkar í MR. Guðrúnu þótti gaman að koma og taka þátt í þeim samkomum.

Við höfum einnig farið í dagsreisur um landið. Í einni ferð um Suðurland komum við að Eyrarbakka, og þarna þótti Guðrúnu tilvalið að segja okkur frá sínum gömlu heimaslóðum. Bauð hún okkur inn í gamla læknishúsið og fengum við þar góðar veitingar hjá henni.

Nú þykir okkur hoggið skarð í þennan gamla vinahóp, sem tekinn er að þynnast. Við sendum börnum Guðrúnar og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur okkar.

Sturla Friðriksson
náttúrufræðingur

* Aftur í Yfirlit
Kven-
réttinda-
félag
Íslands
Kveðja frá Kvenréttindafélagi Íslands

Látin er í Reykjavík Guðrún Gísladóttir, bókasafnsfræðingur og heiðursfélagi í Kvenréttindafélagi Íslands. Guðrún gekk í Kvenréttindafélagið árið 1944 og var meðal máttarstólpa félagsins um áratuga skeið. Hún gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir hönd félagsins og sat í stjórn þess um árabil, þar af sem varaformaður 1982 til 1984. Árið 1987 var Guðrún kjörin heiðursfélagi í Kvenréttindafélaginu.

Guðrún starfaði alla tíð af einurð og réttsýni. Meðal þeirra málefna sem Guðrún bar sérstaklega fyrir brjósti í jafnréttisbaráttunni má nefna kröfuna um sömu laun fyrir sömu vinnu og baráttuna fyrir því að hjón teldu fram til skatts hvort í sínu lagi. Árið 1975 sat Guðrún í nefnd til að undirbúa Kvennafrídaginn, en 24. október það ár lögðu íslenskar konur niður vinnu og söfnuðust saman á útifundum um land allt til að krefjast jafnréttis. Undirbúningsnefndin vann störf sín hratt og örugglega, meirihluti kvenna lagði niður störf og tókst með aðgerð sinni að lama íslenskt atvinnulíf. Um 25.000 konur söfnuðust saman á Lækjartorgi og var það þá með stærstu útifundum sem haldnir höfðu verið hér á landi. Framtakið vakti ekki bara mikla athygli hér heima heldur vakti það einnig sérstaka athygli erlendis.

Guðrún var meðal þeirra kvenna sem stofnuðu Friðarhreyfingu íslenskra kvenna árið 1983. Friðarhreyfingin stóð fyrir undirskriftasöfnun árið 1985 undir kjörorðinu „Friðarávarp íslenskra kvenna“ og sat Guðrún í undirbúningsnefnd söfnunarinnar. 37 þúsund íslenskar konur skrifuðu undir ávarpið sem afhent var á Kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairóbí í Kenía í júlí sama ár. Í Friðarávarpinu fluttu íslenskar konur kveðjur til umheimsins og lauk ávarpinu svo: „Við viljum frið sem grundvallast á réttlæti, frelsi og umhyggju í mannlegum samskiptum.“

Guðrún hlúði að menningu og sögu íslenskra kvenna. Hún var meðal þeirra sem beittu sér fyrir stofnun Kvennasögusafns Íslands og sat hún í áhugahópi um varðveislu og framgang Kvennasögusafns Íslands fyrir hönd Kvenréttindafélagsins, frá stofnun hópsins árið 1987 þar til safnið varð að einingu innan Þjóðarbókhlöðunnar árið 1996, en hafði sú sameining verið markmið hópsins frá upphafi. Þá sat Guðrún í ritnefnd bókarinnar Veröld sem ég vil, sögu Kvenréttindafélagsins sem skráð var af Sigríði Th. Erlendsdóttur sagnfræðingi og kom út árið 1993. Guðrún tengdi eldri og yngri tíma í Kvenréttindafélaginu, en sjálf var hún virkur þátttakandi í sögu félagsins allt frá lýðveldisstofnun.

Kvenréttindafélag Íslands þakkar Guðrúnu framlag hennar til félagsins og jafnréttisbaráttu kynjanna og sendir fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur.

Steinunn Stefánsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands.

* Aftur í Yfirlit
Vilborg
Sigurðar-
dóttir
Kveðja

Guðrún var tíunda barn foreldra sinna og yngst systkina. Auk hennar náðu fullorðinsaldri sex bræður. Hún ólst upp á Eyrarbakka og gekk þar í barnaskóla. Við suma bernskuvini hélt hún sambandi ævilangt. Var sérstaklega ánægjulegt að vera með í því þegar hún bauð nokkrum fermingarsystkinum á æskuheimili sitt fyrir nokkrum árum. Þá voru frændsystkini, börn hennar og systkina hennar, búin að vinna að því um skeið að halda húsinu við og koma upp einskonar minjasafni um fjölskylduna sem þar bjó frá 1916 til 1989.

Hún hafði mikla ánægju og lífsfyllingu af því starfi og lét ekki sitt eftir liggja. Hún ein átti minningarnar og þar við bættist mikið safn bréfa sem höfðu verið á háaloftinu í Læknishúsinu alla þessa áratugi. Hún flokkaði þessi bréf og skráði. Það var hennar fag sem hún var afar fær í, hafði áratuga reynslu sem bóka- og skjalavörður á Orkustofnun í áratugi og menntun í greininni frá Háskóla Íslands – auk brennandi áhuga. Í bréfasöfnunum birtist mikil menningarsaga. Hef ég orðið margs vísari við lestur margra þeirra en þau eru frá því fyrir aldamótin 1900 fram yfir 1960.

Mæðgurnar Guðrún og Aðalbjörg fluttust til Reykjavíkur 1944. Þær héldu saman lengst af meðan báðar lifðu og Guðrún talaði um móður sína af mikilli ást og virðingu. Hún hafði sagt henni mjög margt um liðna tíð, bæði af lífinu á Eyrarbakka og eins frá Húsavík þar sem Aðalbjörg ólst upp að mestu. Þar kynntist hún Gísla sem þangað kom sem héraðslæknir. Þau giftust 1899 og bjuggu á Húsavík til 1914. Þá fór Gísli suður á land en hann hafði verið skipaður héraðslæknir á Eyrarbakka. Aðalbjörg fylgdi honum svo um vorið með börnin. Hún átti tvær systur, Herdísi og Jakobínu, sem báðar fluttust á eftir yngstu systur sinni til Eyrarbakka og bjuggu þær allar þar um árabil.

Guðrún talaði oft um móðursystur sínar og hafði á þeim miklar mætur – og raunar frændfólki sínu öllu. Bréfasöfnin sem áður eru nefnd hafa endurvakið og lífgað alla þessa merku sögu. Eldri bræður hennar fóru til náms í Reykjavík og þrír þeirra tóku stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík. Þangað fór Guðrún líka og útskrifaðist vorið 1941. Hún varð móðir ung að aldri og 24 ára átti hún þrjá drengi. Síðar eignaðist hún fjórða soninn og loks einkadótturina. Lengst af vann hún utan heimilis auk þess að annast börn sín og heimilishald.

Hún lauk ferli sínum í opinberu starfi sjötug að aldri. Því fór þó fjarri að hún legði hendur í skaut. Hún fór að sinna gömlu áhugamáli sínu, bókbandi og fór það listilega úr hendi. Einnig fékkst hún við vefnað og skapaði mörg listaverk í myndvefnaði.

Guðrún naut góðrar heilsu lengst af ævi sinnar. Hún hafði fengið í vöggugjöf einstaklega ljúfa og glaða lund. Aldrei hitti ég hana öðruvísi en í sólskinsskapi. Ellin var henni léttbær enda naut hún ríkrar umhyggju barna sinna og barnabarna. Hennar er sárt saknað.

Vilborg Sigurðardóttir

* Aftur í Yfirlit
Ingunn
Júnía
Gísla-
dóttir
og
fyrrum
samstarfs-
konur
á
Orku-
stofnun
Kveðja

Guðrúnu kynntist ég fyrir rúmum 60 árum, þegar hún kenndi ungum telpum, sem voru að hefja nám í Kvennaskólanum í Reykjavík, stærðfræði. Hún var ung, falleg og glaðvær kona, og þótti hún einkar góður kennari.

Þegar ég hóf störf á Orkustofnun áratugum seinna kynntist ég Guðrúnu aftur, sömu fallegu, jákvæðu og greindu konunni, en þá hafði hún eignast fimm börn, lokið prófi í bókasafnsfræði með jarðfræði sem aukagrein og hafði sett á stofn rannsóknarbókasafnið á Orkustofnun. Á þeim tíma stjórnaði hún því bókasafni. Við samstarfskonurnar vorum alltaf velkomnar á bókasafnið að ræða við Guðrúnu um hin ýmsu mál, sem voru ofarlega á baugi þá stundina.

Eftir að við margar hættum að vinna sakir aldurs var hún mjög áhugasöm um að við héldum hópinn og höfum við komið saman á kaffihúsi mánaðarlega í mörg ár, síðast nú í maí. Guðrún lét sig aldrei vanta á þær samkomur. Hennar verður sárt saknað.

Við sendum fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur.

F.h. fyrrverandi samstarfskvenna á Orkustofnun,
Ingibjörg Júnía Gísladóttir.

* Aftur í Yfirlit
Sigrún
Klara
Hannes-
dóttir
Kveðja

Við kveðjum nú elsta bókasafnsfræðing landsins, Guðrúnu Gísladóttur, nær 93 ára. Guðrún var ákaflega vel gefin og vel gerð, réttsýn og mikil baráttukona. Það þurfti kjark og áræði fyrir stelpu sem fædd var í dreifbýli árið 1920 að brjótast til mennta. Til þess að komast inn í MR fór hún til Ísafjarðar í undirbúningsnám. Þar var hún einn vetur og hóf síðan nám í fjórða bekk í stærðfræðideild MR. Stúdent varð hún 1941 og hafði þá tafist um eitt ár vegna giftingar og barneigna.

Lífsstarf hennar var að mestu leyti tengt Orkustofnun. Þar byrjaði hún að vinna 1956 við að teikna kort eftir mælingum sem verið var að vinna á hálendinu en 1959 var henni falið að sjá um bókasafnið. Það var fyrir nokkra tilviljun að hún fór í nám í bókasafnsfræði en aðalástæðan var sú að stofnanir borguðu fólki slælega sem ekki hafði próf í grein þeirri sem það vann við. Stofnunin óskaði eftir því að hún lærði til starfans og þar sem þetta nám var samkvæmt beiðni fékk hún að stunda námið í bókasafnsfræði í vinnutímanum.

Þegar Guðrún var búin að taka það sem hægt var í bókasafnsfræðinni var hún samt ekki með full réttindi því hún þurfti að ljúka BA-prófi. Um þetta leyti byrjaði kennsla í jarðfræði og þá lá beint við að hún færi þá leið þar eð kjarni safnsins var á þessu sviði. En samt vantaði upp á og skráði hún sig þá í bókmenntasögu. BA-prófinu lauk hún svo 1972 með þá sérkennilegu samsetningu að hafa bókasafnsfræðina sem aðalgrein og aukagreinar í jarðfræði og bókmenntasögu! Yfirmaður safnsins var hún allt til 1990 að hún fór á eftirlaun vegna aldurs.

Guðrún gekk í Bókavarðafélagið sem stofnað var 1960 var í stjórn 1964-1970. Hún var í stjórn Félags bókavarða í rannsóknarbókasöfnum 1975-1977 og varð stofnfélagi í Félagi bókasafnsfræðinga árið 1973 og í fyrstu stjórn þess. Þetta var nokkuð umdeilt félag enda var á þessum tíma álitið að allir gætu séð um bókasöfn. Guðrún vann ötullega við að útskýra að þetta nýja félag væri stofnað til að styrkja réttindi þeirra sem höfðu lært til fagsins en ekki sett til höfuðs þeim sem í söfnunum unnu. Fáir efast um það lengur að það þurfi menntun í bókasafnsfræði til að sinna safnstörfum.
Sem frumkvöðull í stétt bókasafnsfræðinga hlaut hún margvíslegan heiður fyrir lífsstarf sitt. Hún varð heiðursfélagi í Bókavarðafélagi Íslands og Félagi um skjalastjórn og heiðursfélagi varð hún í Kvenréttindafélagi Íslands.

Það var gaman að sitja með Guðrúnu og heyra um öll flóknu verkefnin sem þurfti að leysa í rannsóknarbókasafni fyrir 50 árum enda öll þekking á því sviði hér á landi mjög á byrjunarstigi. Okkur finnst erfitt að skilja hvernig var hægt að leysa upplýsingamál fyrir tíma tölvuvæðingarinnar, án netsins og án allra þeirra þæginda sem okkur finnst sjálfsagt að séu við höndina núna til að létta störfin í bókasöfnum.

Að leiðarlokum við ég þakka Guðrúnu fyrir skemmtileg kynni og fyrir framlag hennar til bókasafna á Íslandi um leið og ég sendi afkomendum hennar mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Sigrún Klara Hannesdóttir

* Aftur í Yfirlit
Upplýsing Upplýsing – félag bókasafns- og upplýsingafræða

vill þakka Guðrúnu kærlega fyrir þau félagsstörf sem hún vann fyrir stétt bókasafnsfræðinga í gegnum tíðina en fyrir þau störf var Guðrún kjörin heiðursfélagi Bókavarðafélags Íslands árið 1996. Upplýsing sendir fjölskyldu og vinum kærar samúðarkveðjur.

Stillt vakir ljósið
í stjakans hvítu hönd,
milt og rótt fer sól
yfir myrkvuð lönd.

Ei með orðaflaumi
mun eyðast heimsins nauð.
Kyrrt og rótt í jörðu
vex korn í brauð.
                                (Jón úr Vör)

F.h. Upplýsingar,
Margrét Sigurgeirsdóttir formaður

* Aftur í Yfirlit
Kristín
Indriða-
dóttir
og
Bjarni
Ólafsson
Samúðarkveðjur - ágúst 2013

Kæri Gísli og þín stóra fjölskylda.

Seint og um síðir sendum við ykkur innilegar samúðarkveðjur vegna andláts móður þinnar, Guðrúnar Gísladóttur.
Við vorum að heiman í sumar og gátum ekki fylgt henni síðasta spölinn.

Fyrir unga bókasafnsfræðinga var Guðrún mikilvæg fyrirmynd sem víkkaði sjóndeildarhringinn. Fullorðin stundaði hún háskólanám, stýrði rannsóknarbókasafni af atorku, átti stóra fjölskyldu og var á kafi í félagsmálum á mörgum vígstöðvum. Samt var hún alltaf reiðubúinn til að leggja góðum málum lið og úrræðagóð var hún með staðgóðri þekkingu, hlýju og glaðlegu viðmóti.

Bjarni kom fyrst á heimili hennar fyrir 60 árum og seinna lágu leiðir oft saman í róttæku starfi í Kópavoginum. Allt skilur þetta eftir ljúfar og umhugsunarverðar minningar. Blessuð sé minning Guðrúnar Gísladóttur.

Kristín Indriðadóttir og Bjarni Ólafsson

*

Aftur í Yfirlit

Þóra
Þórisdóttir

á
Facebook
Á afmælisdeginum 5. sept. 2013

Ég minnist Guðrúnar Gísladóttur í dag á 93 ára afmælisdaginn hennar. Ég var búin að þekkja Guðrúnu jafnlengi og Pétur mág minn eða í meira en 35 ár. Guðrún var engri lík, ótrúlega áhugasöm um listir og handverk, kvenréttindi, bókmenntir og eiginlega mannlífið eins og það leggur sig. Sakna Guðrúnar, stefni að því að eldast jafnfallega og hún gerði og vera virk fram á síðasta dag eins og hún ef gæfan lofar.

*

Aftur í Yfirlit

Fjölskyldumyndir
og
Gamlar myndir af fólki í Gamla læknishúsinu á Eyrarbakka

GGí+PS * Efst á þessa síðu * Forsíða