GÓP-fréttir



Vísur af ýmsum toga
Sjá einnig
14. sept.
2014
Kirkjusóknin í ungviðið

Kirkjan víur ber í börn
- byrlar trú og von -
flekar sér í fávís-tjörn
frænkur, dóttur, son.

30. sept.
2012
"Hefðbundin" útför
Jóhanna Harðardóttir, blaðamaður og Kjalnesingagoði ritaði pistil undir þessu nafni í Mbl. þann 14. sept. sl.. Þar velti hún gangstéttarhellum venja og siða við útfarir og undirstrikaði mikilvægi þess að menn geri ljósan vilja sinn um sína eigin útför.
Þetta var góð grein og í framhaldi af henni kemur hér uppskriftin að útför GÓP:

Hér er komin - sett með sinni,
- síðar þarf ei um að skottast -
uppskriftin að útför minni
eftir að ég dauður vottast:

1. Engin trúmál:

Alveg ljóst er fyrsta fallið
feitum ritað penna rauðum:
hvorki prests né kirkjukallið
komi nokkuð að mér dauðum.

2. Ódýr pappakassi:

Dulítið af dagsins slæðum
dugði mörgum fornum kappa
- hæfir mér í köldum klæðum
kassi gjör úr stinnum pappa.

3. Strax bál og vindar:

Liðsforingi lífs míns sveitar
lætur undir öllu kynda,
afgangs tekur agnir heitar
út í bjarta sali vinda.

4. Fagnaður síðar - t.d. í næstu þrettándaferð í Þórsmörk:

Þeir sem eiga góðar gengnar
gamanstundir sér í minni
heiman - og á fjöllum fengnar -
fá sér einhvers staðar inni,

lífga sína gömlu gleði
glettnir minnast bross og ferðar
- eru svo með sætu geði
sælar áætlanir gerðar.

7. sept.
2012
- undir útfararpresti

Hindurvitnaverserí
- við skal fjöldinn una -
trompar allt og treður í
trúarskáldsöguna.

13. maí
2011
- undir útfararpresti

Presturinn gat þess að í heimsmynd fornaldar væri regnboginn tákn brúar milli tveggja heima.

Ræðir boga, regn og ský,
- ruglið margfaldar.
Trúarhirðar hanga í
heimsmynd fornaldar.

2. október 2010  - undir útfarar-kvenpresti

Ég hélt mér gæfist trúar-frasa-frí
með frúarprest í dómkirkjunnar setri
en æ - þá komst ég auðvitað að því
að ekki eru kvenprestarnir betri.

25. mars 2010 - undir útfararpresti

Klumsa er kirkjugesturinn
kann ekki trúarfunann
meðan að pokapresturinn
predikar draugaspunann.

15. sept. 2009 - undir útfararpresti

Í kirkjunni verður víst mörgum á bæn í brók
og búast svo við því að eilífðargangur sé fenginn
og presturinn trúir á texta í gamalli bók
og telur því Jesú að eilífu afturgenginn.

14. feb. 2009
Músaðu á myndina til að fá hana stærri

Aukin þekking alla styður
eflir greind og eigin styrk
sjálfstraustið til rúms sér ryður:
rofna hindurvitnin myrk.

Júlí 2008  - Aukin þekking losar um trúarhöftin

Eftir því sem merkja má
minni spurn á gati
dvína þarfir allra á
ofurveruplati.

28. des. 2008 Sunnudagur - Davíð Þór drepur sig úr lygamöntrudróma

Bakþankar Fréttablaðsins 7. des. 2008 voru stór áfangi í ferli ritarans. Hann gerði eftirfarandi grein fyrir hugtakinu Lygamantra.

1. Mantra er smíð tungumálsins.
"Tungumálið er sennilega hættulegasta vopnið sem maðurinn hefur fundið upp. Með því virðist nefnilega vera hægt að svipta venjulegt fólk heilbrigðri skynsemi og telja því trú um nánast hvað sem er."

2. Möntruvirknin er (a) algildislegur búningur, (b) spekiyrði og (c) endurtekning.
"Ef setning er sett fram í formi algildra sanninda eða spekiyrða og þulin nógu oft fer fólk sjálfkrafa að álíta hana rétta. Gildir þá einu hve miklum dómadags þvættingi hefur verið komið fyrir í henni."

3. Lygamöntrudæmi:
"Ástæða þess að ég er að vekja máls á þessu er að um þessar mundir virðist mér enn ein lygamantran af þessu tagi vera að fara á kreik. Sú setning hlýtur auðvitað að ofbjóða réttlætiskennd hvers manns og nísta hann í raunveruleikaskynið. Því má þessi blekking alls ekki verða að viðurkenndri staðreynd í huga nokkurs manns. Setningin er svona: Við tókum öll þátt í þessu."

Þessi Bakþanki er sá merkasti sem ég hef lesið eftir Davíð Þór.
Það er mikið þrekvirki að komast svo ofarlega í menningarbrekkur samfélagsins að ná að greina fyrstu lygamöntruna. Hún er hverjum kærust. Sá sem þar sest sér til hvíldar og lítur yfir hólinn kemst ekki hjá því að skima eftir fleirum. Áður en langt um líður silast þær í ljós. Fyrst þær sem síðast hófust. Þær eldri verjast vel. Best verst sú sem byrjað var að þylja yfir kornabarninu í vöggunni og stanslaust síðan. Á Íslandi hefst hún svona: Faðir vor, þú sem ert á himnum.

Lygamöntrufundur er áfall. Því meira sem dýpra er á henni. Smám saman styrkjast þó stoðirnar aftur. Reiðin út í þá sem héldu manni í möntrudrómanum víkur fyrir auknu víðsýni. Maður upplifir frelsi til að bera sjálfur ábyrgð á sjálfum sér. Og - maður reynir að halda lygamöntrum úr Bakþönkum sínum.

Sunnudaginn 21. des. 2008 rakst ég næst á Bakþanka eftir Davíð Þór.
Hann heitir Ömurleg jól, er ágætur texti og óskar öllum gleðilegra jóla.
Ólíkt fyrri jólahugleiðingum ritarans - var ekkert Faðir vor í þessum texta.

Lið sitt veitir lýðum trúr
lyftir þjóða sóma:
lúnar sálir leysir úr
lygamöntrudróma.

11. júlí 2008  - Plantaðar hugmyndir

Í blaðagrein um kynlíf þykir verðlaunakonu "jaðra við ofbeldi að planta svona hugmyndum í kollinn á 11 ára börnum". Þau hafi greiðan aðgang að efni með mismunandi og óæskilegum skilaboðum ... og sniðgangi upplýsingar að mestu leyti.

Trúboðinn kemur í hugann. Hann fær milljarða af almannafé. Af öllu afli plantar hann hugmyndum í kollinn á ungabörnum og elur á þeim alla ævi. Hann sér um að þau hafi greiðan aðgang að efni með hugmyndar-réttum skilaboðum og að þau sniðgangi allar staðreyndir. Skynsamleg umræða er forboðin.

Árangur hans er ótvíræður. Í útvarpi sama dag talar hagfræðingur, fyrrum alþingismaður og núverandi frammámaður í samtökum á vinnumarkaði. Um látinn mann segir hann "hvar svo sem hann er staddur." Stutt hlé - og svo: "Ég veit hvar hann er staddur".

Hér verður ályktað að hagfræðingurinn telji hinn látna vera virkan í ráðuneyti ofurverunnar.

Hér verður einnig ályktað að verðlaunakonunni yfirsjáist ofurkapp - og vellukkun samfélagsins í að kenna börnum - frá vöggu til grafar - að trúa bulli án nokkurs tillits til staðreynda.  

Barnið erfir tapað tafl
týnir lífsins gulli
þegar lagt er ofurafl
á - að trúa bulli.

3. júlí 2008

Sjá hér
um miklu
bæna-
tilraunina
 

- Bænanauðgun barna

Bænin kennir að til séu óáþreifanleg ill öfl. Uppspuninn um ill öfl hefur frá öndverðu verið notaður til að kúga þá fáfróðu. Auðveldast er að bænanauðga börnum. Fæst þeirra komast nokkru sinni heil úr heljargreipum þeirrar martraðar sem hefst þegar þau læra sína fyrstu bæn.

Englabull og áraher
æsku fyllir lævi.
Bænanauðgun barna er
bölvun heillar ævi.

Ath. Helmingur bandaríkjamanna trúir biblíusögunni um tilurð lífsins á jörðunni. Þar eru trúarsjóðir sem hafa mikil peningaráð og valdastöður. Árið 2006 var birt niðurstaða umfangsmikillar rannsóknar á mætti bænarinnar sem kostað hafði 2,4 milljónir dollara og fjölmenna frjálsa þátttöku. Niðurstaðan var einföld: Bænir höfðu engin áhrif - en þeir sem vissu að beðið var fyrir þeim áttu lengri og erfiðari bata leið. Sjá hér nánar um þessa merku tilraun.

12. júní 2008  - Ofurveran - Sumt verður ekki betur sagt.

Dr Gunni (Gunnar Hjálmarsson) ritar bakþanka Fréttablaðsins í dag um það þegar fólk er
að móðgast fyrir hönd annarra
.
Þar segir hann meðal annars:
...
Fyrst komast hinar móðguðu sveitir vitleysinga á flug þegar taka skal upp hanskann fyrir ímynduðu ofurveruna á himnum. Þá fara hinir móðguðu í ham og hreinlega sturlast. Þeir telja sig í fullum rétti til að vera brjálaðir enda er verið að vanvirða það sem þeim er "heilagast", ranghugmyndina í huga þeirra. Þeir brjáluðustu víla ekki fyrir sér að kveikja í eða drepa af því að þeir eru svo ægilega móðgaðir. Svo telja þeir sig studda af ofurverunni sem klappi ánægð uppi á skýi. - Eins og hún sjálf gæti ekki gengið í málið væri hún til, verandi þetta máttug - og allt.
...

Háskólar með helgideild
hrekja burtu þekkinguna
upp svo spinna aðra heild:
ofurverublekkinguna.

20. febrúar 2008  - Kristilega "siðgæðið"

Enn einn presturinn staðsetur sig kyrfilega á þriðja stigi siðferðisþroskans með því að halda því fram að þeir sem ekki trúi á yfirnáttúrulegan refsivönd geti ekki öðlast siðferðisþroska. Þetta kallar á vangaveltur um það stórmerkilega fyrirbæri við háskóla sem nefnist guðfræðideildir eða guðspekideildir og virðast hafa það meginmarkmið að afmennta stúdenta til kristilegra starfa. Með vísan til myndrænna biblíulíkinga frá ævintýrinu um fæðingu Jesúbarnsins þar sem englar sjást svífandi aftan yfir kindahópi verður niðurstaðan þessi:

Ef til speki engill telst
yfir kindar huppi,
þá má segja - held ég helst:
Heimskan veður uppi.

9. febrúar 2008 - Eilífðarrefsingin

Hugleiðing um trúboða heimsins sem lofa öllum mönnum grænum skógum eftir dauðann - ef þeir aðeins - lifandi - játast undir viðkomandi trúarok - og helst drepa hina.

Eden alla svíkur:
aldrei rok né mein.
Lúx sem aldrei lýkur
loks er bölvun ein.

Dauðans tilboðstíkur
tapa flugi - því:
líf sem aldrei lýkur
langar engan í.

25. des. 2007 - Ok ofurveruplatsins

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur staðið sig vel í starfi menntamálaráðherra og eflst við hverja raun ekki síst þegar á henni hefur staðið karlremburaus frá Samfylkingu, Vinstri grænum - og nú síðast Framsókn. Í umræðunni um kristilega siðgæðið hefur hún - ein íslenskra menntamálaráðherra - lent í því að lýsa yfir sannfæringu sinni um hann guð í himnaríki - sem til var búinn í því skyni að vera skapari mannsins í sinni mynd og síðan notaður um aldir til að undiroka alþýðuna. Næsta ár eru 200 ár liðin frá fæðingu Darwins sem fimmtugur opinberaði þá leiðarsteina sem hann hafði fundið benda á þróun lífsins á jörðinni. Sú þróun hefur nú - einni og hálfri öld síðar - endanlega verið rakin til upphafs síns. Hætt er við að trúarsannfæringar reynist lítið hjálplegar til að bæta stöðu íslenskra barna á Písa-skalanum. Ekki verður þó undan vikist að nefna í leiðinni að  kristniboðsstefna Framsóknarflokksins gerir það að þjóðarnauðsyn að hann komist aldrei til áhrifa aftur. 

Almennt er mörlandinn ágæta glaður
- eftir sín kynni af Darwin í skóla -
verandi upplýstur alþýðumaður
utan við steina og kirkjur og hóla.

15. des. 2007 - Grunnstoð trúarbragða

Í Mogga dagsins skrifar Reynir Harðarson um trúmál og vitnar í skrif Karls biskups um það liðsinni sem biskupinn sækir til Satans og hvernig biskupinn lítur á þjóðsögur og ævintýri en boðar hins vegar að jólaguðspjallið sé heilagur sannleikur. 

Helgidómunum hæfir
hjátrúargámurinn -
biskupinn bratt þar gnæfir
og blessaður Sataninn.

14. október 2007

- Afmenntun biskupsins flóir yfir

Sigurbjörn Einarsson biskup hefur nú fengið fastan dálk í Morgunblaðinu og lætur þar ljós sitt skína. Í upphafi leiddi hann fram mikla mælskusnillinga sem ýmsir lofuðu mælskuna mælskunnar vegna en aðrir notuðu hana sannleikanum til framdráttar. Af því gaf hann blekkingameisturum lágar einkunnir. Svo skellti hann inn skáldsögunni um Jesú - rétt eins og hún væri sannleikur. Þá kom að því lögmáli lífsins sem Darwin opnaði augu manna fyrir. Það var afgreitt og ómerkt í fáum orðum.
Jesúbullið hafa flestir neyðst til að innbyrða með móðurmjólkinni - en það þarf að loka augum skynseminnar til að sjá ekki lögmál lífsins.

Biskup puðar pistlatörn
párar Darwins-kífið
minnir á þau mannabörn
minnst sem þekkja lífið.

28. ágúst 2007

 - Undir útfararpresti

Guðaginntur álfur
ginnir næsta sinn:
"Guð það sagði sjálfur"
segir presturinn.

10. nóvember 2006

- Trúarundirstaðan

Útfararpresturinn fer með ævintýrið um konurnar sem á páskadagsmorgni gengu til grafar Krists. Þær töluðu saman um hvort þær mundu geta velt steininum frá munnanum en þegar þær komu þangað hafði hann verið fjarlægður, engill sat inni en Kristur risinn upp og farinn á flakk. Presturinn segir að þetta sé heilagt guðs orð og undirstaða kristinnar trúar.
(Á hinu fræga fyrsta kirkjuþingi í Níkeu í Litlu-Asíu árið 325 var ákveðið að þessi ljómandi góða smásaga skyldi kallast sönn.)

Fabúlur margar ég merkar tel
um manninn og jólasveininn
en ljómandi er hve hún lukkaðist vel
litla sagan um steininn.

21. nóv. 2005  - Undir útfararpresti

Músík lyftir anda efst
alla nær að styrkja
en þegar presta þulan hefst
þá er best að yrkja.

Ósk mín sú fer efst á pall
og með bendli rauðum:
hvorki prests né kirkju kall
komi að mér dauðum.

3. júní 2005 - Undir útfararpresti

Allir prestar - eins og nú -
öðru lífi hæla
og úr bókum ausa trú
óupplýstra þræla.

11. jan. 2005 - Undir útfararpresti

Þetta blíu blaður
blásið er um allt,
þetta dauðadaður
drepur þúsundfalt.

14. des. 2002

 

- Á jólakortið

Ísland - þar sem allir hugsa sitt -
og er menn standa frammi fyrir vanda
veit hver og einn að arfa-rangt er hitt!
Aðeins ég á réttu hef að standa!

2. júlí 2002  - Undir útfararpresti

Eitt mér leiðist öðru meir
- eins og sumarhaglið -
kirkjuprestar, þegar þeir
þylja trúarstaglið.

3. júní 1994  - Undir útfararpresti

Skil ég við skortinn glaður
til skeiðar og til hnífs
mætti ég sleppa, maður,
við martröð eilífs lífs.

GÓP-fréttir  * efst á þessa síðu